Lögreglumenn á fundi

Lögreglumenn eru að hefja fund í félagsheimili sínu.
Lögreglumenn eru að hefja fund í félagsheimili sínu. mbl.is/Júlíus

Rúmlega áttatíu lögreglumenn, sem allir eru í óeirðasveit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sitja nú á fundi í félagsheimili lögreglunnar við Brautarholt.

Samkvæmt upplýsingum mbl.is er talið líklegt að á fundinum verði borin upp sú tillaga að lögreglumennirnir fylgi fordæmi félaga sinna á landsbyggðinni, sem hafa sagt sig úr óeirðasveitum viðkomandi lögregluembætta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert