Verðbólguhvetjandi verðtrygging
„Þessi vísitala ætti í raun og veru ekki að vera mælikvarði á höfuðstólshækkanir lána. Ef að vilji löggjafans er að tryggja lánin fyrir rýrnun gjaldmiðils er þetta ekki rétta vísitalan til að miða við, þá ætti í raun að nota vísitölu nafnverðs sem mælir nafnbreytingar vöruverðs,“ segir Andrea J. Ólafsdóttir, formaður stjórnar Hagsmunasamtaka heimilanna.
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,63% í september og hefur vísitalan þá hækkað um 5,7% síðustu 12 mánuði og um 1% síðustu þrjá mánuði sem jafngildir 4,1% verðbólgu á ári. Er þetta mesta 12 mánaða verðbólga sem mælst hefur frá því í júní árið 2010, segir í nýjum tölum frá Hagstofunni.
„Framkvæmd verðtryggingarinnar, að bæta alltaf við viðbótarláninu með því að greiða ekki verðbætur mánaðalega heldur lána þær áfram, gerir það að verkum að bankar og fjármálastofnanir skrifa eigur sínar hærri inn í bækur sínar. Að okkar mati gerir þetta að verkum, að peningamagn í umferð eykst, því lánamöguleikar þeirra aukast. Þeir geta lánað meira peningamagn með því að skrifa þetta í bækur sínar, þannig eykst peningamagn í umferð og það veldur verðbólgu,“ segir Andrea og bætir við að verðtryggingin eins og hún er í dag sé verðbólguhvetjandi en ætti ekki að vera það ef að rétt væri með farið. Væru verðbætur staðgreiddar þá héldist verðbólgan niðri.
„Það þarf að koma í veg fyrir þessa framkvæmd verðtryggðra lán og það þarf að gerast strax. Í framhaldinu þarf síðan að afnema verðtryggingu á neytendalánum,“ segir Andrea.
Hún segir, að rúmlega 30 þúsund manns hafi nú skrifað undir kröfuna um afnám verðtryggingar heimasíðu samtakanna. „Í gegnum tíðina hafa mörg frumvörp verið lögð fram á Alþingi þess efnis, en þau hafa ekki fengið afgreiðslu úr nefndum, ekki fengið umræðu þings, né atkvæðagreiðslu. Nú er tími til kominn."
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Verðbólguhvetjandi verðtrygging/þetta er að verða þjóðarskömm!!,afnemum hana!!!!
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 28. nóvember 2011, Innlent Sjálfvirka peningaprentvélin verði aftengd
- Laugardagur, 1. október 2011, Innlent 34.000 Íslendingar krefjast leiðréttingar
- Laugardagur, 21. maí 2011, Innlent „Ofbeldi gagnvart heimilunum“
- Föstudagur, 30. september 2011, Innlent Formaður lögreglufélagsins á samstöðufundi
- Fimmtudagur, 25. ágúst 2011, Innlent 24.000 vilja afnema verðtryggingu
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































