Ríkið lélegt í mannauðsstjórnun

Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi. stækka

Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi.

Mannauðsstjórnun hjá ríkinu er almennt ekki eins öflug og hjá einkafyrirtækjum og lítið er um að laun ríkisstarfsmanna séu tengd frammistöðu þeirra. Þetta segir í nýrri skýrslu frá Ríkisendurskoðun.

Mannauðsstjórnun felst m.a. í því að beita markvissum aðferðum til að efla starfsmenn og bæta frammistöðu þeirra. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að mannauðsstjórnun hjá ríkinu sé vanþróuð og almennt ekki eins öflug og hjá einkafyrirtækjum. Verulega skortir á að frammistaða allra ríkisstarfsmanna sé metin formlega og reglubundið. Þá er lítið um að frammistaða þeirra sé tengd launum. Ríkisendurskoðun leggur til að stjórnvöld leiti fyrirmynda annars staðar á Norðurlöndum um það hvernig unnt sé að bæta úr þessu.

Að mati Ríkisendurskoðunar þurfa stjórnvöld að móta formlega heildarstefnu um mannauðsmál sem nái til allra ráðuneyta og stofnana ríkisins. Að því loknu þarf að tryggja að eftir stefnunni verði farið. Ákveða þarf hvers konar vinnuveitandi ríkið skal vera og hvernig það geti laðað til sín hæft starfs­fólk og haldið því. Til að unnt sé að móta slíka stefnu þarf þó fyrst að greina mögulega veikleika í mannauðsmálum ríkisinsMá þar t.d. nefna nú er svo komið að tæplega helmingur ríkisstarfsmanna er eldri en 50 ára og allt stefnir í að fjórðungur þeirra fari á lífeyri á næstu fimm árum. Einnig má nefna að verulegur munur er á launakjörum ríkisstarfsmanna og starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Þá má benda á að tveir af hverjum þremur ríkisstarfsmönnum eru konur en þær eru hins vegar einungis þriðjungur forstöðumanna ríkisstofnana og stjórnenda ráðuneytanna. Við stefnumótun um mannauðsmál ríkisins þurfa stjórnvöld að taka afstöðu til þess hvernig bregðast eigi við þessum veikleikum og öðrum. 

Í skýrslunni kemur fram að í kjölfar bankahrunsins haustið 2008 hafi stjórnvöld ráðist í umfangsmiklar samdráttaraðgerðir. Breytingar hafi verið gerðar á skipulagi stjórnsýslunnar og á starfskjörum ríkisstarfsmanna.  Ársverkum þeirra hafi fækkað um 6,5% frá árinu 2008. Á sama tíma hafi spurn eftir opinberri þjónustu vaxið. Þrátt fyrir þetta hafi tekist að halda uppi sama þjónustustigi og var fyrir hrunið. Ríkisendur­skoðun telur að stjórnvöld þurfi að horfa til þessara breytinga við mótun mannauðsstefnu fyrir ríkið.

Starfsmannaskrifstofa fjármálaráðuneytisins hefur m.a. það hlutverk að fjalla almennt um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna, túlka lög þar um og ákvæði kjarasamninga. Ríkisendurskoðun telur að útvíkka eigi hlutverk skrifstofunnar þannig að það taki til fleiri þátta mannauðsmála. Hún eigi að veita stofnunum víðtækari aðstoð og ráðgjöf á þessu sviði en hún gerir nú. Einnig eigi hún að fylgjast með starfsmannaveltu og fjölda veikindadaga ríkisstarfsmanna. Ekki liggja fyrir samræmdar upplýsingar um þessa þætti hjá ríkisstofnunum og telur Ríkisendurskoðun brýnt að úr því verði bætt. Móta þarf áætlanir um hvernig bregðast skuli við ef launamunur fer að hafa veruleg áhrif á starfsmannaveltu ríkisstofnana. Enn fremur telur Ríkisendurskoðun að skrifstofan eigi að hafa forystu um að meta framtíðarþörf ríkisins og einstakra stofnana þess fyrir vinnuafl með mismunandi menntun og hæfni.

Í skýrslunni kemur fram að vinnuálag á ríkisstarfsmenn hafi aukist í kjölfar hrunsins. Að mati Ríkisendurskoðunar þurfa stjórnvöld að leitast við að draga úr álagi þar sem það er óeðlilega mikið. Þannig sé unnt að koma í veg fyrir að veikindaforföll og starfsmannavelta verði of mikil með tilheyrandi kostnaði fyrir ríkið. Ríkisendurskoðun tekur undir hugmyndir fjármálaráðu­neytisins um að mótuð verði svokölluð gæðaviðmið í mannauðsmálum sem öllum stofnunum ríkisins verði gert að fylgja. Enn fremur telur stofnunin brýnt að mótuð verði sérstök stefna í málefnum stjórnenda hjá ríkinu og að henni verði fylgt eftir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »
Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.

Catalina er í fullu fjöri

17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem að hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Lightroom námskeið 11.og 13. júní 2012
Grunn námskeið í Lightroom. Kennd verða allir helstu verkferlar og á helstu aðge...
Íbúð til leigu í London
Falleg íbúð til leigu í hjarta Stoke Newington í Austur London. Rúmgott svefnher...
Gisting á Höfuðborgarsvæðinu.
Erum með laus herbergi í gistiheimilinu. Tilboð í maí. Gistiheimilið Lily Nýb...
Lagersala Kauptuni 3 Garðabæ
Birkiplöntur,Ösp,Grenitré o.fl. plöntur á hnaus.Opið mánud. til föstud. kl.13-18...
 
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...