Skuldir sveitarfélaga lækka
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur unnið upplýsingar úr rafrænum skilum sveitarfélaga á ársreikningum þeirra fyrir árið 2010. Þar kemur fram að heildarskuldir og skuldbindingar A-hluta reikningsskilanna hafa lækkað úr 154% af heildartekjum árið 2009 í 146% á árinu 2010, eða úr 262 milljörðum króna í 254 milljarða. Heildarskuldir A- og B-hluta, þ.e. samstæðu sveitarfélaga, hafa lækkað á sama tíma úr 269% af heildartekjum í 255%, eða úr 599 milljörðum króna í 586 milljarða.
Í bréfi sem eftirlitsnefndin sendi sveitarstjórnum landsins 21. september sl. kemur m.a. fram að samkvæmt ársreikningum sveitarfélaganna árið 2010 eru 20 sveitarfélög með skuldir og skuldbindingar umfram 150% af heildartekjum í A-hluta reikningsskilanna, en 29 sveitarfélög þegar litið er á bæði A- og B-hluta. Í bréfinu er einnig að finna yfirlit um fjármál einstakra sveitarfélaga og samanburð á milli landssvæða.
Eftirlitsnefndin kynnti með bréfi í júní 2010 kjörnum fulltrúum í sveitarfélögum hlutverk nefndarinnar, viðmið hennar og þær lykiltölur sem hún hefur sett fram við mat á rekstrarafkomu, skuldum og skuldbindingum. Vilji nefndarinnar er að halda áfram samskiptum sínum við kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum með það að markmiði að auka upplýsingar, auðvelda samanburð á rekstrarlegum og fjárhagslegum stærðum milli sveitarfélaga og skapa þannig góðan grundvöll fyrir umræðu um fjármál þeirra. Í nýjum sveitarstjórnarlögum er m.a. kveðið á um tiltekið skuldaþak með hliðstæðum hætti og eftirlitsnefndin hefur haft til viðmiðunar í störfum sínum.
Í eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga eiga sæti Ólafur Nilsson, sem er formaður, Þórður Skúlason og Hafdís Karlsdóttir.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 2. september 2010, Innlent 12 sveitarfélög fá aðvörun
- Miðvikudagur, 23. mars 2011, Innlent Skuldir sveitarfélaga jukust
- Mánudagur, 6. september 2010, Innlent Segja Voga ekki glíma við skuldavanda
- Mánudagur, 30. ágúst 2010, Innlent Áfram athugasemdir við Reykjanesbæ
- Föstudagur, 7. október 2011, Innlent Ólík skuldastaða nágranna
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































