Andlát: Joe Allard
Dr. Joe Allard, lektor í bókmenntum við háskólann í Essex, lést 23. september sl., 63 ára að aldri.
Hann fæddist 21. apríl árið 1948 í Connecticut í Bandaríkjunum og stundaði nám í bókmenntum, listasögu og tónlist. Hann lauk doktorsprófi frá háskólanum í Essex á Englandi og var lektor í bókmenntum við skólann frá 1977 þar til í ágúst á þessu ári að hann fór á eftirlaun. Joe Allard fór sem gestakennari til Bandaríkjanna, Sviss, Þýskalands, Íslands og Japans. Hann kenndi bókmenntir við Maryland-háskólann í herstöðinni í Keflavík um skeið. Hann var mikill Íslandsvinur og kenndi auk enskra bókmennta íslenskar bókmenntir að fornu og nýju við háskólann í Essex.
Joe Allard vann ötullega að kynningu og útgáfu íslenskra bókmennta á Englandi. Hann þýddi meðal annars ljóð eftir Matthías Johannessen í Voices from across the Water (1997) og gaf út ljóð eftir ung íslensk skáld, þ.ám. Sjón og Lindu Vilhjálmsdóttur. Hann vann að útgáfu íslenskra skáldsagna á borð við Eftirmála regndropanna og Engla alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson, Svaninn eftir Guðberg Bergsson, Grámosinn glóir eftir Thor Vilhjálmsson og Meðan nóttin líður eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur. Eftir hann liggja greinar um myndlist, tónlist, kvikmyndir og bókmenntir. Hann ritstýrði ýmsum sýnisbókum, s.s. Beowolf & Other Stories. A New Introduction to Old English, Old Icelandic and Anglo-Norman Literatures (2007, endurbætt útg. 2011) og Longman Anthology of Old English, Old Icelandic and Anglo-Norman Literatures (2011). Þegar hann lést hafði hann lagt lokahönd á Icelandic Poetry (c. 870-2007) in the translations of Bernard Scudder, sem fyrirhugað er að gefa út á næstu dögum eða vikum.
Eftirlifandi eiginkona Joes Allards er Sanae Kasahara. Hann lætur eftir sig einn uppkominn son, Chris Allard tónlistarmann.
Útför Joes Allards verður gerð frá Wivenhoe 6. október nk.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 24. október 2011, Innlent Andlát: Emil Hilmar Eyjólfsson
- Þriðjudagur, 20. desember 2011, Innlent Andlát: José Romero
- Miðvikudagur, 9. mars 2011, Innlent Andlát: Robert G. Cook
- Miðvikudagur, 7. september 2011, Innlent „Einræðisherrar kljúfa sérhverja þjóð“
- Fimmtudagur, 28. júlí 2011, Innlent Andlát: Egill Jónasson Stardal
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































