Kanna betur þyngd kjötvöru

Þyngd forpakkaðra kjötvara var oft ekki í samræmi við merkingu. stækka

Þyngd forpakkaðra kjötvara var oft ekki í samræmi við merkingu. mbl.is/Þorkell

Neytendastofa ætlar að beita skipulegum úrtaksskoðunum og könnunum til þess að bæta eftirlit með hvort þyngd forpakkaðrar unninnar kjötvöru sé í samræmi við merkingu. Álegg reyndist nokkuð léttara enn upp var gefið á pökkum í könnun Neytendastofu á dögunum.

Hjá þremur af fjórum íslenskum framleiðslufyrirtækjum, sem ekki nota svonefnt e-merki, voru frávik á raunmagni kjöts í umbúðunum meiri en leyfilegt er. Af 12 vörutegundum sem vigtaðar voru hjá þessum aðilum reyndust 6 vörutegundir eða 50% ekki standast kröfur.

„Hingað til hefur verið horft á tækin og löggildingu þeirra. Nú sjáum við að við þurfum að taka skref lengra og gera úrtakskannanir. Þó að tækin sem notuð eru séu rétt þarf að kanna hvort magnið sem fer í pakkningarnar sé það sem lofað er,“ segir Tryggvi Axelsson, forstjóri Neytendastofu.

Hann segir að stofnuninni hafi borist ábendingar og kvartanir og smám saman hafi því orðið tilefni til þess að hún beindi markvisst sjónum sínum að þessum þætti. Kjötborð í verslunum þar sem vara er vigtuð þar sem fólk sér til séu að hverfa. Því sé kastljósið að beinast að þeim hluta markaðarins þar sem forpökkun fer fram.

„Hefðbundið eftirlit með vogum í verslunum er þekkt og hefur verið hér lengi. Nú erum við að færa eftirlitið á gólf þeirra sem pakka og fylgjast með því að þetta sé rétt gert,“ segir Tryggvi.

Það sé líka mikilvægt fyrir fyrirtækin að rétt sé staðið að pökkuninni svo þau yfirpakki ekki. Hagur neytenda og fyrirtækja fari því saman í þessum efnum.

Álegg léttara en gefið var upp.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »
Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.

Catalina er í fullu fjöri

17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem að hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
NICOLAI bifreiðastillingar, Faxafeni 12, sími 588 2455. Véla- og hjólastillingar...
Lagersalan Kauptúni 3 Garðabæ
Birkiplöntur með hnaus verð frá 2000 kr stk. Opið virka daga kl.13-18 , laugard....
Flott sjónvarp til sölu!
29 tommu túbu sjónvarp frá Sony til sölu. Það er 8 ára gamalt og í góðu lagi. T...
Hyundai Tucson ´04 til sölu
Til sölu Hyundai Tucson nýskr. 29.10.2004. Sjálfskiptur, dráttarkrókur, bensín, ...
 
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Tækniskólinn - atvinnuauglýsing
Önnur störf
Framúrskarandi kennarar óskast í ...