80 milljóna sekt

mbl.is/Heiðar

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest, að Vífilfell hefði brotið gegn bannákvæðum samkeppnislaga með því að misnota markaðsráðandi stöðu sína á gosdrykkjamarkaði. Er fyrirtækinu gert að greiða 80 milljónir króna í sekt en Samkeppniseftirlitið hafði gert Vífilfelli að greiða 260 milljónir króna í sekt.

Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu í mars, að Vífilfell hefði brotið gegn bannákvæðum samkeppnislaga með því að misnota markaðsráðandi stöðu sína á gosdrykkjamarkaði. Um var að ræða um 900 samninga Vífilfells við viðskiptavini, einkum veitingahús og verslanir, sé innihéldu ólögmæt ákvæði um einkakaup, skilyrta afslætti og önnur tryggðarákvæði.

Skuldbatt Vífilfell viðskiptavini sína til þess að kaupa gosdrykki einungis af félaginu en slíkir samningar eru ólögmætir þegar markaðsráðandi fyrirtæki á í hlut, að sögn Samkeppniseftirlitsins, sem gerði fyrirtækinu að greiða 260 milljóna króna sekt.

Vífilfell skaut ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og krafðist þess að hún yrði felld úr gildi. Gerði fyrirtækið margvíslegar athugasemdir við bæði efni ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins og málsmeðferð þess. Taldi fyrirtækið að það væri ranglega talið markaðsráðandi og samningar þess gætu ekki falið í sér brot. Þá hefði andmælaréttur fyrirtækisins verið brotin og rannsókn Samkeppniseftirlitsins verið gölluð.

Áfrýjunarnefnd féllst ekki á þau rök Vífilfells að gosdrykkir teljist tilheyra sama markaði og t.d. mjólkurdrykkir, safar eða aðrir óáfengir drykkir og staðfesti nefndin m.a. með vísun til u.þ.b. 70% markaðshlutdeildar á gosdrykkjamarkaði þá niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins að Vífilfell væri markaðsráðandi. Staðfesti nefndin einnig þá niðurstöðu að Vífilfell hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína. Benti nefndin á að einkakaupasamningar markaðsráðandi fyrirtækja væru til þess fallnir að útiloka eða takmarka verulega samkeppni frá minni eða nýjum keppinautum.

Í úrskurðinum segir áfrýjunarnefnd að hún telji brot Vífilfells alvarleg en lækkar sektina í 80 milljónir. Segir nefndin mikilvægt að „samhengi og samræmi, eins og við getur átt, sé á milli ákvarðana sekta í samkeppnismálum. Er því sérstaklega horft til úrlausna áfrýjunarnefndar í málum sem varða misnotkun á markaðsráðandi stöðu undanfarin misseri.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert