Fundu skothylki við þinghúsið
Jón Pétur JónssonTvö skothylki fundust í morgun fyrir framan alþingishúsið. Starfsmenn sem voru að þrífa húsið eftir mótmælin í gær fundu þau um kl. 10 í morgun. Bæði hylkin voru með skotunum í. Lögreglan og forseti Alþingis líta málið alvarlegum augum.
Þorsteinn Pálmarsson, framkvæmdastjóri hreinsunarfyrirtækisins Allt-Af, segir í samtali við mbl.is að skothylkin hafi fundist um kl. 10 í morgun fyrir framan gamla aðalinngang þinghússins. Þeim hafi í framhaldinu verið komið í hendur í þingvarða. Þeir höfðu samband við lögregluna sem sótti skotin.
Hörður Jóhannesson, aðstoðarlögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að skotin séu smá, eða 22. kalíbera, og að þau hafi verið heil. Þau passi t.d. í skammbyssur eða litla riffla. Þá segir hann að það sé ómögulegt að segja nokkuð um það hvað þau hafi legið þarna lengi. Það sé hins vegar alvarlegt mál að skothylki liggi á glámbekk.
„Um vörslu skotvopna og skotfæra gilda ákveðnar reglur og þær eru mjög strangar hér á landi. Þannig að þetta er ekki forsvaranleg meðferð að skilja þetta eftir á glámbekk,“ segir Hörður. Hins vegar sé lögreglan engu nær um hver hafi skilið skothylkin eftir.
„Okkur varð illa við“
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, telur málið vera grafalvarlegt. „Auðvitað varð okkur illa við og þetta er það sem lögreglan verður að taka á, þegar verið er að beita ofbeldi hvar sem er í samfélaginu. Sérstaklega hér við löggjafarsamkunduna þá verða þeir að rannsaka það og taka á því,“ segir Ásta.
Ekkert sé hægt að fullyrða en ljóst sé að skothylkin finnist við hreingerningu eftir mótmælin í gærkvöldi. Aðspurð segir hún engin fordæmi fyrir því að skothylki finnist við húsið. „Nei, það eru engin fordæmi fyrir því.“
Bloggað um fréttina
-
Viggó Jörgensson Gæti einnig verið stjórnarliði. -
Torfi Kristján Stefánsson Hvenær grípa yfirvöld í taumana? -
Ásgrímur Hartmannsson Ljótt er... -
Margrét Sigurðardóttir Gæsaskytta gaf sig fram við lögreglu -
Axel Jóhann Axelsson Líflátshótanir? -
Kristján H. Kristjánsson Skil hæstaréttadómara -
Jón Ingi Cæsarsson Vona að fólk fari að skilja alvöru málsins. -
Jón Snæbjörnsson Alþingismenn eru "enn" 63 talsins ...........
Innlent »
- Þröstur og Bragi jafnir
- Stöðvaður eftir ofsaakstur
- Alsírsku drengirnir áfrýja
- Listflug við Reykjavíkurflugvöll
- Ákærður fyrir að stinga mann
- Landsbjörg leitar enn að Ligitu
- Klára kvótamálin í vikunni
- Hreint hjarta besta myndin
- Mætti innbrotsþjófum í forstofunni
- Veðurblíða víða um land
- Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af
- Kosningamiðstöð Þóru opnuð
- Ferry heillaði í Hörpu
Sunnudagur, 27.5.2012
-
Peningar ekki rót alls ills
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 4. október 2011, Innlent „Þingmenn slegnir“
- Þriðjudagur, 4. október 2011, Innlent Gæsaskytta gaf sig fram
- Miðvikudagur, 16. nóvember 2011, Innlent Krotað á veggi þinghússins
- Mánudagur, 3. október 2011, Innlent Samstaða á Austurvelli
- Mánudagur, 3. október 2011, Innlent Óviðunandi ofbeldi
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú


































