Gleymdi potti á eldavélinni

mbl.is / Hjörtur

Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað út í dag vegna reyks sem lagði frá húsi í bænum. Í ljós kom að reykurinn stafaði frá potti á eldavél, en húsráðandi hafði gleymt honum á hellunni.

Enginn eldur hafði kviknað í eldhúsinu. Slökkviliðið reykræsti íbúðina en talsvert mikill reykur var í henni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert