Fréttaskýring: „Langur og hreinskiptinn“ fundur
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Deilurnar milli forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, og ríkisstjórnarinnar verða stöðugt harðari. Athygli vakti að bæði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra gagnrýndu forsetann í umræðum á Alþingi um stefnuræðu forsætisráðherra á mánudagskvöld. Sagði forsætisráðherra m.a. að forsetinn ætti að vera hafinn yfir „dægurþras“ stjórnmálanna.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra varaði við „sundurlyndisfjandanum“, sem Jón Sigurðsson gerði frægan í sinni tíð. Hvatti ráðherrann alla til að taka sig á, þar á meðal forsetann.
Háleynilegur trúnaðarfundur
Að sögn heimildarmanna í forsætisráðuneytinu áttu Jóhanna og Ólafur Ragnar fund á föstudag en Jóhanna minntist ekkert á hann í stefnuræðu sinni. Jóhanna mun ekki vilja tjá sig um fundinn þar sem um hann ríki trúnaður. En sagt er að hann hafi verið „langur og hreinskiptinn“ og fjallað meðal annars um samskipti ríkisstjórnar og forseta.
Forsetinn minntist ekki á þennan fund með Jóhönnu í ræðu sinni við setningu Alþingis daginn eftir. Ekki er ljóst hvort hann er einnig á því að alger trúnaður hafi átt að ríkja um hann, jafnvel um það hvort hann hafi farið fram! En ekki greindu menn mikinn sáttatón gagnvart ríkisstjórninni í ræðu forsetans á Alþingi sl. laugardag.
Hann lagði áherslu á að þingið afgreiddi tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskránni áður en kosið yrði til forsetaembættisins á næsta ári. Tillögurnar gera stöðu forsetans valdameiri, að mati Ólafs Ragnars. Hann segir að kjósendur verði að vita hvaða völd þeir séu að fela forseta á næsta ári, hver sem hann verði. Forsetinn gefur enn ekkert upp um það hvort hann bjóði sig fram á ný.
Ólafur Ragnar hefur m.a. sakað ríkisstjórnina um að hafa látið Breta og Hollendinga svínbeygja sig í Icesave-deilunni.
„Menn beygðu sig fyrir þessu ofbeldi af hálfu Evrópuþjóðanna og samþykktu fyrst samning sem var svo óheyrilegur að ekki aðeins hrópaði íslenska þjóðin hann af heldur hlupu Bretar og Hollendingar frá honum [...] ef haldið hefði verið á málinu af skynsemi frá upphafi þá var bara algjör óþarfi að setja íslenska þjóð og samstarf okkar við Evrópuríkin í þessa spennitreyju,“ sagði forsetinn í viðtali við Ríkisútvarpið 4. september.
Jóhanna nafngreindi ekki forsetann í ræðu sinni. „Það er óumdeilt að forsetinn hefur frelsi til að tjá sig opinberlega,“ sagði forsætisráðherra. En mikilvægt væri að forsetinn virti „í orði og verki“ þá stefnu og stjórnarframkvæmd sem réttkjörin stjórnvöld mótuðu á hverjum tíma.





































