Árs fangelsi fyrir innbrot og hótanir
Hæstiréttur hefur dæmt 28 ára gamlan karlmann í 12 mánaða fangelsi fyrir innbrot og fyrir að hóta tveimur lögreglumönnum lífláti og líkamsmeiðingum. Héraðsdómur Austurlands hafði áður dæmt manninn í 9 mánaða fangelsi.
Maðurinn hefur margoft verið dæmdur fyrir brot gegn valdstjórninni og hann hefur einnig ítrekað verið dæmdur fyrir auðgunarbrot og líkamsárásir. Hann var í ágúst sl. dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir umferðarlagabrot og gegn valdstjórninni sem beindust gegn fjórum lögreglumönnum og tilraun til meiriháttar líkamsárásar gegn einum þeirra. Þeim dómi var ekki áfrýjað.
Í málinu, sem Hæstiréttur dæmdi í dag, var maðurinn handtekinn í október í fyrra. Komu lögreglumenn að manninum sitjandi við götuna gegnt lögreglustöðinni á Höfn í Hornafirði. Hann var í annarlegu ástandi og svaraði engu í fyrstu en færðist síðan allur í aukana og byrjaði að hrækja og öskra formælingar að lögreglumönnum. Lögreglumennirnir sögðust ítrekað hafa reynt að róa hann en jafnframt gætt varúðar vegna vitneskju um að maðurinn væri smitaður af lifrarbólgu C, en sjá hafi mátt blæðandi sár og skrámur á höndum hans og höfði.
Fram kemur í dómnum, að maðurinn sagðist ekkert muna eftir atburðum. Hann sagðist ekkert eiga sökótt við umrædda lögreglumenn og hafa átt góð samskipti við þá í gegnum tíðina, þótt þeir hefðu oft þurft að hafa afskipti af honum. Þá myndi hann aldrei standa við hótanir af því tagi sem honum væru gefnar að sök.
Hljóðupptaka var til af samskiptum mannsins og lögreglumanna í lögreglustöðinni á Höfn. Í dómnum segir, að á hljóðrituninni sé ekki alltaf hægt að greina orðaskil, en af henni megi skýrt heyra að maðurinn hafi verið í eins konar sturlunarástandi eins og lögreglan lýsti, öskrandi, hrækjandi og viðhafandi formælingar. Þá heyrist hann segja: „ég veit hvar þú átt heima helvítið þitt“, en auk þess heyrist snemma á upptökunni að hann viðhafði orðin „ég sprengi ykkur“.
Tveir lögreglumenn báru einnig að maðurinn hefði ítrekað, bæði fyrir utan lögreglustöðina og inni í fangaklefa, hótað þeim báðum lífláti og barsmíðum.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 15. maí 2011, Innlent Í fangelsi fyrir að hóta lögreglu
- Mánudagur, 11. október 2010, Innlent Með kjöthamar og kjötexi
- Fimmtudagur, 23. september 2010, Innlent Hótuðu börnum lögreglumanna lífláti
- Miðvikudagur, 29. júní 2011, Innlent Þriggja mánaða fangelsi
- Miðvikudagur, 24. ágúst 2011, Innlent Fangelsi fyrir hótanir og árásartilraun
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































