Fréttaskýring: Ólík skuldastaða nágranna

Sundkennsla á Álftanesi. stækka

Sundkennsla á Álftanesi. mbl.is/Golli

Morgunblaðið Rúnar Pálmason runarp@mbl.is

Á ársreikningum fyrir árið 2010 sést vel að himinn og haf er á milli fjárhagsstöðu Garðabæjar og Álftaness. Skuldirnar eru um það bil jafnmiklar en íbúar á Álftanesi voru í fyrra um 2.500 en Garðbæingar tæplega 11.000.

Fjármál Álftaness eru í ólestri eftir óstjórnina 2006-2009 en með framlagi frá ríkinu og afskriftum lánardrottna er ætlunin að grynnka á skuldunum þannig að þær verði um 3,2 milljarðar en ekki um sjö milljarðar.

Gangi þetta eftir verða forsendur til að hefja á ný sameiningarviðræður á milli þessara tveggja sveitarfélaga. Þær hafa legið niðri frá því um áramót meðan beðið var eftir að fjárhaldsstjórnin næði samningum við ríkið og lánardrottna þess um endurskipulagningu fjármála og afskriftir skulda.

Helstu lánardrottnar Álftaness eru Eignarhaldsfélagið Fasteign, sem á íþróttamannvirkin, Lánasjóður sveitarfélaga, Húsnæðissamvinnufélagið Búmenn og Arion banki.

Skulda áfram mikið

Skuldir og skuldbindingar Álftaness námu um síðustu áramót 6,7 milljörðum og höfðu lækkað úr 7,2 milljörðum árið 2009, einkum vegna styrkingar krónunnar á því tímabili. Síðan þá hefur gengið heldur veikst og verðbólga verið töluverð og því líklegt að skuldir Álftaness, eins og annarra, hafi heldur hækkað.

Í Garðabæ bjuggu í fyrra um 10.600 manns og námu heildarskuldir og skuldbindingar rúmlega 6,5 milljörðum, um 612.000 krónum á hvern íbúa. Skuldir Álftaness voru um 143 milljónum hærri en þar eru líka fjórum sinnum færri íbúar. Skuldir á hvern íbúa voru 2,6 milljónir á Álftanesi.

Jafnvel þótt skuldir Álftaness verði lækkaðar niður í 3,2 milljarða verða skuldir á hvern íbúa enn háar eða tæplega 1,3 milljónir á íbúa og tæplega 250% af tekjum sveitarfélagsins árið 2010. Í nýjum sveitarstjórnarlögum er miðað við að skuldir fari ekki yfir 150% af reglulegum tekjum sveitarfélags.

Sameining við Garðabæ myndi þýða að skuldir Garðabæjar ykjust nokkuð. Skuldir á mann í sameinuðu sveitarfélagi yrðu um 738.000 krónur.

Það vekur nokkra eftirtekt að rekstrartekjur sveitarsjóðsins í Garðabæ voru tæplega 542.000 krónur á mann en á Álftanesi voru þær um 534.000 a mann. Hér hefur það auðvitað veruleg áhrif að Álftnesingar borga 10% álag ofan á útsvar og fasteignaskattar eru þar mun hærri en í Garðabæ, og raunar töluvert hærri en á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali. Á hinn bóginn er útsvar á höfuðborgarsvæðinu hvergi lægra en í Garðabæ og fasteignaskattar sömuleiðis lágir.

Kosið um sameiningu

Sameiningu sveitarfélaganna þarf að samþykkja í báðum sveitarfélögum, með einföldum meirihluta í hvoru þeirrra. Verði sameining samþykkt er mögulegt að innanríkisráðuneytið boði til kosninga til sveitarstjórnar þótt kjörtímabilið verði aðeins u.þ.b. hálfnað, líkt og m.a. var gert þegar sex sveitarfélög sameinuðust í Ísafjarðarbæ árið 1996. Einnig geta stjórnir hvors sveitarfélags fyrir sig starfað áfram fram að næstu sveitarstjórnarkosningum. Ef sú verður raunin er í lögum kveðið á um að samþykki beggja sveitarstjórna þurfi fyrir ákvörðunum í fjármálum.

Kostnaðurinn lendir á öðrum

Alls er gert ráð fyrir að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga leggi Álftanesi til einn milljarð aukalega, þar af 300 milljónir á þessu ári, að því gefnu að sveitarfélagið sameinist öðru sveitarfélagi. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir ljóst að aukaframlagið hefði einnig farið til annarra illra staddra sveitarfélaga ef Álftanesi hefði ekki verið siglt í kaf. Sveitarstjórnarmenn segi margir sem svo að ef sveitarfélag fari í þrot lendi kostnaðurinn óhjákvæmilega á öðrum og að aðstoða verði íbúana. Einnig hafi það viðhorf komið fram að nýta eigi heimild til að leggja 25% álag á útsvar á Álftanesi en ekki einungis 10% eins og nú er. Um leið hafi menn áhyggjur af því að fleiri sveitarfélög sigli í þetta kjölfar en Halldór telur að önnur illa stödd sveitarfélög geti sparað nægilega í rekstri til að standa undir skuldum.

Svört skýrsla

» Skýrsla Ríkisendurskoðunar um rekstur Álftaness 2006-2009 var kolsvört.
» Sveitarstjórnin réðst ekki aðeins í alltof miklar fjárfestingar heldur var reksturinn einnig í ólestri.
» Í skýrslunni segir að fullyrðingar um að „vandi sveitarfélagsins sé að mestu efnahagshruninu að kenna standast ekki“.
» Reksturinn hafi verið kominn í óefni löngu fyrir hrun.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

„Aðalatriði að komast í lokakeppnina“

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem að hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Touareg árg.2005
VW v:2,29 mkr, glæsilegur bíll v8 bein innspýtingu sjálfsk. e105 þkm. ný dekk, S...
15 FM SUMARHÚS
15 fm sumarhús úr þéttum viði â€" fæst me...
Góður Harley hippi á einstöku tilboði
HD Dyna Wide Glide Custome árg. 1999. ek. 12 þús. míl. innfl. 2008, ásett 1500 þ...
Flottur svefnsófi og 2 stólar
Sófinn er úr Microfiber (Alcan Pava) og kostar nýr tæpar 800 þús kr. Stærð sóf...
 
Grunn og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Grunn- og leikskólakennarar ...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....