Hlutur kvenna einungis 25%
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra en ekkert ráðuneyti stendur sig jafn illa í að skipa konur í nefndir. Ómar Óskarsson
Einungis 25% nefndarmanna í nefndum skipuðum af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu eru konur, samkvæmt nýrri skýrslu jafnréttisstofu um nefndir, ráð og stjórnir á vegum ráðuneytanna. Samkvæmt lögum er gert ráð fyrir að hlutur hvors kyns um sig skuli ekki vera minni en 40% nema að málefnalegar ástæður liggi að baki.
Heilbrigðisráðuneytið var með jafna þátttöku kynjanna (50%:50%) í nefndum á sínum vegum. Félags- og tryggingamálaráðuneytið var eina ráðuneytið með fleiri konur en karla í nefndum en hlutur kvenna var 51%.
Þrjú ráðuneyti voru með hlut kvenna í nefndum á bilinu 40%-49%. Það voru efnahags- og viðskiptaráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og mennta- og menningarmálaráðuneyti. Í öðrum ráðuneytum var hlutur kvenna á bilinu 32%-39%, samkvæmt skýrslunni en frá árinu 2008 hafa verið í gildi lög um að jafna hlut kvenna og karla í nefndum á vegum hins opinbera.
Hlutfall kynjanna í öllum nefndum árið 2010 var 40% konur og 60% karlar. Hlutfall kynjanna í nýjum nefndum sem skipaðar voru á starfsárinu 2010 var 43% konur og 57% karlar.
Þegar kynjakvótinn var leiddur í lög 2008 voru 43% nefnda í samræmi við kynjakvótann. Árið 2010 voru 50% starfandi nefnda skipaðar í samræmi við 15. greinina. Árið 2010 voru skipaðar 164 nefndir. Af þeim voru 109 eða 66% í samræmi við 15. greinina.
„Ljóst er að áfram þarf að vinna markvisst að því að skipa konur og karla til jafns í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ráðuneytanna. Jafnréttisstofa hefur unnið í samstarfi við ráðuneytisstjóra og jafnréttisfulltrúa ráðuneytanna að því að finna leiðir til jafna hlutfallið frekar en farið er yfir það í skýrslunni,“ segir í skýrslunni en hana má lesa hér.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 8. mars 2012, Innlent Einungis 18,7% eru verk kvenna
- Föstudagur, 25. mars 2011, Innlent Launamunur kynjanna minnkar
- Föstudagur, 16. mars 2012, Innlent Vísar ummælum til föðurhúsanna
- Miðvikudagur, 29. september 2010, Innlent Karlar ráðandi í fréttum
- Mánudagur, 21. mars 2011, Innlent Kynjuð hagstjórn orðin tóm
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































