Krefjast umhverfismats í Hvalfirði
Grundartangi í Hvalfirði. www.mats.is
Stjórn Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð undrast þá niðurstöðu Skipulagsstofnunar að fyrirhuguð natríumklóratverksmiðja á Grundartanga við Hvalfjörð skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Í ályktun frá samtökunum segir að það sé miður ef stjórnvöld ætli ekki að láta það vera forgangsverkefni í starfi sínu að stuðla að heilsusamlegu umhverfi íbúa landsins.
„Nauðsynlegt og sjálfsagt er að gæta fyllstu varúðar gagnvart fyrirtækjum sem vitað er að geti spillt umhverfinu með hættulegum efnum, í þessu tilfelli er m.a. um að ræða vítissóta og saltsýru,“ segir í ályktuninni. Umhverfisvaktin segist hafna alfarið því viðmiði Skipulagsstofnunar að gefa megi fyrirtækjum „afslátt“ á kröfu um umhverfismat, vegna þess að mengun frá þeim sé lítilvæg miðað við þá mengun sem fyrir er á tilteknu svæði.
Umhverfisvaktin bendir á það að aldrei hafi verið rannsökuð samlegðaráhrif mengandi efna frá iðjuverunum á Grundartanga. Því sé ekki vitað hver mengun umhverfisins sé í raun og veru. Þá séu niðurstöðu mengunarmælinga vegna iðjuveranna á Grundartanga ónothæfar sem vitneskja til að byggja á, vegna þess að ábyrgð mælinganna sé hjá forsvarsmönnum iðjuverjanna sjálfra. Bent er á að hreinsibúnaður iðjuveranna á Grundartanga hafi ítrekað bilað, síðast hjá Norðuráli nú í september, með ókunnum afleiðingum enda hafi þær ekki verið rannsakaðar.
Umhverfisvaktin telur því að fremur en að auka hættu á mengun á svæðinu væri nær að gera meiri kröfur en nú eru gerðar til gæða og öryggis í hreinsikerfum iðjuverjanna á Grundartanga. Væntir hún þess að sveitastjórn Hvalfjarðarsveitar beiti sér fyrir mati á umhverfisáhrifum vegna umræddrar natríumklóratverksmiðju.
Umhverfisvaktin var stofnuð í fyrra af hópi áhugafólks um verndun lífríkisins við Hvalfjörð jafnt í sjó, lofti og á landi.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 7. febrúar 2012, Innlent Hafna háspennulínu í Hvalfirði
- Þriðjudagur, 11. október 2011, Innlent Ekki mengunarslys
- Föstudagur, 23. september 2011, Innlent Með tvær verksmiðjur í takinu
- Miðvikudagur, 21. september 2011, Innlent Kemíra þarf ekki umhverfismat
- Mánudagur, 27. júní 2011, Innlent Afkastaaukning ekki háð umhverfismati
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































