Sparkað í höfuð liggjandi manns
Fólskuleg líkamsárás var framin á Sauðárkróki um helgina, þar sem maður sparkaði í höfuð annars manns sem lá í götunni. Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki hlaut sá sem ráðist var á alvarlega áverka og mátti litlu muna að illa færi.
Það var aðfaranótt laugardags sem lögreglunni barst tilkynning um líkamsárás utan við skemmtistað í bænum. Þegar lögregla kom á staðinn gáfu sig strax fram nokkur vitni sem lýstu því hvernig nafngreindur árásarmaður hefði sparkað í höfuð manns sem lá á götunni. Að sögn lögreglu virðist sem árásin hafi verið með öllu tilefnislaus. Aðstæður litu mjög illa út á vettvangi, mikið blæddi úr andliti mannsins sem lá vankaður á götunni en þó með meðvitund.
Eftir að hlúð hafði verið að manninum og hann sendur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki var ábendingum vitna fylgt að árásarmanninum, hann handtekinn og vistaður í fangageymslu í nóttina. Skýrslur hafa nú verið teknar af bæði vitnum og hinum grunaða og miðar rannsókn málsins vel að sögn lögreglu, sem naut aðstoðar rannsóknardeildar lögreglunnar á Akureyri vegna alvarleika málsins.
Sá sem fyrir árásinni varð var á laugardag fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri þar sem hann gekkst undir nánari skoðun og reyndist vera með fjölmarga áverka bæði í andliti og hálsi. Mjög litlu munaði að hann hlyti varanlegan skaða af, en betur fór en á horfðist og hefur hann nú verið útskrifaður.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 3. janúar 2011, Innlent Sparkaði í höfuð fórnarlambsins
- Mánudagur, 14. febrúar 2011, Innlent Sparkaði þrívegis í höfuð liggjandi manns
- Mánudagur, 14. mars 2011, Innlent Líkamsárásir á Selfossi
- Föstudagur, 29. apríl 2011, Innlent Í fangelsi fyrir líkamsárás
- Fimmtudagur, 1. mars 2012, Innlent Ók á dekk og lenti næstum út af
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































