St. Jósefsspítala lokað
St. Jósefsspítala í Hafnarfirði verður lokað um áramótin, að því er fram kom í fréttum RÚV. Tilkynnti Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, þetta á starfsmannafundi á St. Jósefsspítala í dag. Björn mun halda fleiri starfsmannafundi á Landspítalanum á fimmtudag, vegna aðgerða sem grípa þarf til á næstunni.
Ein lyflækningadeild hefur verið starfandi í Hafnarfirði, fyrir aldraða einstaklinga sem bíða aðgerða og meltingarfærasjúklinga, alls 18 rúm. Á deildinni hafa starfað 29 manns í 19 stöðugildum.
Björn segir í samtali við mbl.is að nýta eigi tímann framundan til að reyna að finna önnur störf á spítalanum fyrir sem flesta af þeim sem unnið hafa á St. Jósefsspítala, sem sameinaðist Landsspítala sem kunnugt er um síðustu áramót.
Að sögn Björns er ekki hægt að útiloka að ekki takist að útvega öllum störf, einhverjir hafi einnig haft uppi áform um að hætta störfum. Ekki sé heldur útilokað að deildin verði lögð niður fyrir áramót, ef aðstæður leyfi.
„Við höfum þurft að fækka töluvert störfum á spítalanum undanfarið. Það þarf að fækka heildarfjölda starfsmanna á næsta ári en munum reyna að nýta starfsmannaveltuna sem mest," segir Björn, sem mun kynna aðgerðir Landspítalans á starfsmannafundum á fimmtudag.
Spurður hvað verði um húsnæði St. Jósefsspítala um áramót segir Björn að reynt verði að finna því annað hlutverk, en ljóst sé að það henti illa fyrir nútíma sjúkrahúsrekstur. Það muni verða verkefni Fasteigna ríkisins að kveða upp úr með það. Til greina hefur komið að skoða möguleika á að breyta húsnæðinu í öldrunarheimili en til þess þarf töluverðar framkvæmdir.
Bloggað um fréttina
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson Öfga-alþjóðahyggja stórskaðar íslenzka velferð! -
Reynir W Lord Helvítis ríkistjórn .... ég er búin að fá nóg af ... -
Sleggjan og Hvellurinn Ögmundur "herra nærsamfélag" Jónasson -
Haraldur Haraldsson St. Jósefsspítala lokað um áramót/Ennþá er skorið niður við trog ... -
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir St. Jósesspítali lokar um áramótin
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 31. janúar 2011, Innlent Sólvangur sjálfstæð stofnun
- Fimmtudagur, 13. október 2011, Innlent Stöðum á LSH fækkar um 85
- Föstudagur, 4. febrúar 2011, Innlent Margir starfsmenn langþreyttir
- Miðvikudagur, 11. apríl 2012, Innlent Búnaðurinn fór áfram í notkun eða í geymslu
- Laugardagur, 22. október 2011, Innlent Sjúklingum fjölgar á Landspítala
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































