Niðurstaða í rýnivinnu um byggðamál
Efla þarf stjórnun og eftirlit með ríkisútgjöldum þegar kemur að þeim þáttum sem nauðsynlegir eru til framkvæmdar byggðastefnunnar. Þetta er meðal niðurstaðna ESB vegna rýnivinnu um byggðamál, sem er liður í viðræðum um aðild að ESB.
Íslenskum stjórnvöldum barst í dag niðurstaða Evrópusambandsins vegna rýnivinnunnar um byggðamál. Í svonefndri rýniskýrslu ESB er tíundaður málflutningur fulltrúa Íslands um sérstöðu Íslands vegna mannfæðar, strjálbýlis, dreifbýlis og fjarlægðar frá erlendum mörkuðum.
Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni er að íslensk stjórnsýsla sé lítil og sveigjanleg og til staðar sé talsverð reynsla við rekstur og þátttöku í ýmsum áætlunum ESB. Viðeigandi löggjöf er sögð að mestu leyti til staðar en styrkja þurfi lagagrundvöll á nokkrum sviðum og tryggja að fjárlagagerð á sviði byggðamála taki mið af áætlanagerð til lengri tíma.
Við framkvæmd byggðastefnunnar ætlar Ísland að nýta núverandi stjórnsýslu eftir því sem kostur er og hafa hana smáa og einfalda í sniðum, segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu um skýrsluna. Þróa þurfi verklag sem tryggi að reglum ESB um val verkefna og framkvæmd byggðastefnunnar verði fylgt og koma á fót samráðsferli milli ráðuneyta.
Starfsfólk stjórnsýslunnar er að mati ESB hæft og vel menntað en byggja þurfi upp þekkingu vegna framkvæmdar byggðastefnunnar, m.a. á sviði áætlanagerðar, verkefnastjórnunar, eftirlits og mats.
Tímasett áætlun verði lögð fram
Niðurstaða ESB er kynnt með bréfi til íslenskra stjórnvalda. Þar kemur fram að sambandið telji að forsenda þess að hefja samningaviðræður um byggðamál sé að íslensk stjórnvöld leggi fram ítarlega og tímasetta aðgerðaáætlun þar sem fram komi skýr markmið að því er varðar framkvæmd byggðastefnunnar og þá stjórnsýslu sem nauðsynleg er. Slík áætlun sé mikilvæg í ljósi þess að Ísland hyggst ekki ráðast í stjórnsýslubreytingar í tengslum við aðildarviðræðurnar fyrr en eftir samþykkt aðildarsamnings í þjóðaratkvæðagreiðslu. Íslensk stjórnvöld munu nú hefja vinnu við áætlanagerðina og ljúka henni á næstu mánuðum svo hefja megi efnislegar samningaviðræður um málaflokkinn, að því er segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Rýniskýrslu ESB um byggðamál má nálgast hér.
Bloggað um fréttina
-
Páll Vilhjálmsson Byggðin, Evrópusambandið og sjálfsvirðingin -
Sigurður Þorsteinsson Ríkisstjórnin elskar landsbyggðina!
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 19. janúar 2011, Innlent Engu breytt vegna ESB
- Þriðjudagur, 9. nóvember 2010, Innlent Efnahagsleg skilyrði uppfyllt
- Mánudagur, 15. nóvember 2010, Innlent ESB hafnar hugmyndum Ögmundar
- Miðvikudagur, 17. nóvember 2010, Innlent VG tekst á um ESB-inngöngu
- Fimmtudagur, 4. nóvember 2010, Innlent Neituðu að lána starfsmenn
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































