Verulegar hækkanir á fjárheimildum til ráðuneytanna
Í frumvarpi til fjáraukalaga, sem lagt var fyrir Alþingi í gær, er m.a. sótt um heimildir vegna aukins kostnaðar við rekstur ráðuneytanna.
Lagt er til að fjárheimild innanríkisráðuneytis verði aukin um 1.395 milljónir. Fjárheimild velferðarráðuneytis mun hækka um 14.581 milljón, verði frumvarpið að lögum, þar af er hækkun vegna félagslegrar aðstoðar 1.283 milljónir.
Lagt er til að fjárheimild til forsætisráðuneytisins hækki um 109 milljónir, og heimild til mennta- og menningarmálaráðuneytis um 767,8 milljónir, en 220 milljónum á að verja til að tryggja námspláss í framhaldsskólum vegna aðstæðna á vinnumarkaði.
Lagt er til að framlag til utanríkisráðuneytis hækki um 460,5 milljónir, til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis aukist um 247,3 milljónir og til fjármálaráðuneytis um 1.345,5 milljónir. Þar vega vaxtabætur þungt, en óskað er eftir því að fjárheimild vegna þeirra verði hækkuð um 500 milljónir.
Þá er lagt til að heimild til iðnaðarráðuneytis hækki um 422,9 milljónir, til efnahags- og viðskiptaráðuneytis um 71,1 milljón og til umhverfisráðuneytisins um 1.122,8 milljónir.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 16. október 2010, Innlent Hálfur milljarður í stjórnlagaþing
- Miðvikudagur, 24. nóvember 2010, Innlent Útgjöld lækka um 5,4 milljarða
- Miðvikudagur, 12. október 2011, Innlent Milljarði minna í Fæðingarorlofssjóð
- Föstudagur, 27. apríl 2012, Innlent Bágborin staða Blindrabókasafnsins
- Laugardagur, 16. október 2010, Innlent 800 milljónir vegna eldgosa
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































