Fjölmenni á Umhverfisþingi

Um 300 manns mættu til Umhverfisþings í dag.
Um 300 manns mættu til Umhverfisþings í dag. www.umhverfisraduneyti.is

Náttúruvernd er aðal viðfangsefni Umhverfisþings sem haldið er á Selfossi í dag. Um 300 manns mættu til þingsins í morgun, samkvæmt frétt umhverfisráðuneytisins.

Svandís Svavarsdóttir setti þingið og rakti hún hvernig náttúruverndarmál hafa eflst á undanförnum misserum. Hún „sagði Hvítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands, sem er til umræðu á þinginu, ryðja brautir í nýjum og vönduðum vinnubrögðum við undirbúning nýrrar löggjafar hér á landi,“ samkvæmt frétt ráðuneytisins.

Ella Maria Bisschop-Larsen, formaður Dönsku náttúruverndarsamtakanna, var heiðursgestur Umhverfisþings. Dönsku náttúruverndarsamtökin fagna 100 ára afmæli á þessu ári.

Bisschop-Larsen fjallaði m.a. um hve mikilvægu hlutverki náttúruverndarsamtök gegni við að veita stjórnvöldum aðhald. Þá ræddi hún um friðlýsingar og hvernig Dönsku náttúruverndarsamtökin hafa gegnt virku hlutverki við friðlýsingar í Danmörku.

Ella Maria Bisschop-Larsen, formaður Dönsku náttúruverndarsamtakanna, var heiðursgestur Umhverfisþings.
Ella Maria Bisschop-Larsen, formaður Dönsku náttúruverndarsamtakanna, var heiðursgestur Umhverfisþings. www.umhverfisraduneyti.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert