María hættir hjá LA
María Sigurðardóttir hefur látið af störfum sem leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar.
Í tilkynningu frá Maríu segir, að hún hafi komist að því samkomulagi við stjórn leikfélagsins að hún segi starfi sínu lausu svo stjórn og starfsfólk geti byrjað að vinna sig út úr fjárhagserfiðleikunum, ásamt nýjum leikhússtjóra, með hreint borð.
María segir, að fjárhagsörðugleikar Leikfélags Akureyrar hafi verið nokkuð í umræðunni að undanförnu. Mörgum hafi brugðið í brún þegar fréttist af miklu tapi á rekstri félagsins á síðasta ári og mikil umræða hafi átt sér stað um stöðu leikhússtjóra, stjórnar LA og framtíð atvinnuleikhúss á Akureyri. Fyrrverandi framkvæmdastjóri hætti í lok sumars vegna málsins.
„Allar rekstrar- og verkefnaáætlanir á undanförnum árum hafa verið samþykktar af stjórn LA. Á síðasta leikári stóðust rekstraráætlanir félagsins ekki. Að hluta til var það vegna uppsetningarinnar á Rocky Horror, en sýningin var sett upp í nýju húsi og reyndist dýrari en áætlað var og erfitt að sjá fyrir marga dýra pósta í því ferli. Það hefur einnig komið í ljós við skoðun á bókhaldi að rekstraráætlanir síðasta árs voru byggðar á röngum forsendum, þar sem raunverulegri fjárhagsstöðu félagsins var haldið leyndri fyrir stjórn og leikhússtjóra, en það hefur víða verið pottur brotinn í fjármálastjórn félagsins undanfarin tvö ár, en útlit er fyrir að þar sé um að kenna þekkingarskorti og reynsluleysi fremur en ásetningi,“ segir María.
Hún sagðist hafa lagt til að hún hætti störfum hjá LA í lok þessa leikárs en sú krafa hefði komið til stjórnar LA, að hún hyrfi frá störfum umsvifalaust. Í samráði við stjórn LA láti hún því af störfum að lokinni næstu frumsýningu LA sem er 28. október.
„Ég er ósátt við að geta ekki klárað leikárið, það stríðir mjög gegn minni samvisku að klára ekki það verk sem ég er byrjuð á. Það þýðir þó ekki að deila um það, en ég er þeirrar skoðunar að að baki þessari kröfu búi ekki umhyggja fyrir hag Leikfélags Akureyrar, sem og áberandi þekkingarleysi á starfsemi atvinnuleikhúss. Þegar leikhússtjóri yfirgefur húsið á miðju leikári skapar það mikið óöryggi og álag fyrir starfsfólk hússins, og verður ekki síður flókið fyrir þann aðila sem tekur við listrænni stjórn félagsins,“ segir í yfirlýsingu Maríu.
|
|
Tilkynning Maríu Sigurðardóttur |





































