10.700 án atvinnu
Á þriðja ársfjórðungi voru að meðaltali 10.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 5,9% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 5,6% hjá körlum og 6,2% hjá konum. Frá þriðja ársfjórðungi 2010 til annars ársfjórðungs 2011 fækkaði atvinnulausum um 1.000 manns.
Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysi mest meðal fólks á aldrinum 16–24 ára eða 9,5%. Hjá hópnum 24–54 ára var atvinnuleysi 5,1% og 5% hjá 55–74 ára. Á þriðja ársfjórðungi 2011 var atvinnuleysi 7% á höfuðborgarsvæðinu en 3,7% utan þess, segir á vef Hagstofu Íslands.
Langtímaatvinnulausum fjölgar
Af þeim sem voru atvinnulausir á þriðja ársfjórðungi 2011 voru að jafnaði 1.600 manns búnir að vera atvinnulausir í 1–2 mánuði eða 14,9% atvinnulausra. Til samanburðar höfðu 2.000 manns verið atvinnulausir í 1–2 mánuði á þriðja ársfjórðungi 2010 eða 16,8% atvinnulausra. Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Á þriðja ársfjórðungi 2011 höfðu um 3.100 manns verið atvinnulausir svo lengi eða 29,1% atvinnulausra. Á þriðja ársfjórðungi 2010 voru þeir sem höfðu verið atvinnulausir ár eða lengur um 2.700 manns eða 23,1% atvinnulausra. Langtíma-atvinnulausum hefur hins vegar fækkað þegar litið er til þróunar innan ársins 2011.
Á þriðja ársfjórðungi 2011 voru 0,9% af þeim sem voru á vinnumarkaði atvinnulausir í 1–2 mánuði en 1,1% á þriðja ársfjórðungi 2010. Langtímaatvinnulausir voru 1,7% vinnuaflsins á þriðja ársfjórðungi 2011 samanborið við 1,5% sama tíma árið 2010.
Fjöldi starfandi á þriðja ársfjórðungi 2011 var 171.800 manns og fjölgar um 1.600 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 182.500 manns sem jafngildir 81% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 84,4% en kvenna 77,6%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.
Á þriðja ársfjórðungi 2010 voru alls 181.900 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist þá 81,4%. Atvinnuþátttaka karla var þá 84,1% og kvenna 78,6%.
Innlent »
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Þingið brást stjórnlagaráði
- Ný skátaöld að hefjast
- Hefur afplánun á Skólavörðustíg
- Auka þarf umfang vöktunar
- Dráttur í beinni
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Segist ekki saka sýslumenn um lögbrot
-
Ómarkviss þjóðaratkvæðagreiðsla
- Varað við lúmskri ísingu
- „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“
- Aftur til stjórnlagaráðs
- Vill ESB-tillögu á dagskrá
- Nokkur fjöldi mála í athugun
- Hæfileikakeppni á mbl.is og Skjá einum
- Fjallað um bréf Jóns Baldvins til unglingsstúlku
- Vilja úttekt á stöðu verslunar í miðborginni
- Lýst eftir stolnum bíl
- Fordæma árás á starfsmann
- Litskrúðugt og líflegt í Fríhöfninni
- Ráðist á einn stjórnenda Dróma
- Hafna ásökunum Hagsmunasamtaka heimilanna
- Hlutverk FME að rannsaka Dróma
- Jórunn Pála formaður Vöku
- Slysavarnaskólinn fékk björgunarbúninga
- Forsendur fyrir áframhaldandi ráðningu brostnar
-
Hrafnshræ voru í tunnunum
- Smyglaði áfengi og tóbaki
- Gísli Páll: Hreyft við velferðarráðherra
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
- Kvótafrumvarp
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 18. janúar 2012, Innlent Dregur úr langtímaatvinnuleysi
- Mánudagur, 20. febrúar 2012, Innlent Langtímaatvinnulausum fjölgar
- Föstudagur, 21. október 2011, Innlent Ólíkar mælingar á atvinnuleysisdraugnum
- Fimmtudagur, 13. október 2011, Innlent Enn dregst atvinnuleysi saman
- Mánudagur, 8. nóvember 2010, Innlent Mikill slaki á íslenskum vinnumarkaði
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
-
Bragi: Sorglegt baráttuleysi
-
Blár Ópal tryllir lýðinn




































