Standa við yfirlýsingu um innkaup
Ríkisendurskoðun segist telja, að ekkert hafi komið fram sem breyti niðurstöðum stofnunarinnar um innkaup löggæslustofnana sem finna megi í ábendingu hennar frá 27. september sl. Stofnunin standi því við ábendinguna.
Í ábendingunni kom fram að á tímabilinu janúar 2008 til apríl 2011 keyptu löggæslustofnanir vörur af fjórum fyrirtækjum í eigu lögreglumanna eða náinna venslamanna þeirra fyrir samtals rúmlega 91 milljón króna. Að mati Ríkisendurskoðunar fór hluti þessara viðskipta í bága við lög um opinber innkaup.
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sagði í gær að dregin hafi verið upp villandi mynd af málinu þegar gefið væri til kynna að lögreglan hafi ekki farið að lögum og reglum við innkaup. Hins vegar sé nauðsynlegt að koma innkaupum á vegum lögregluembætta í landinu í markvissari farveg eins og Ríkisendurskoðun leggir til.
Á heimasíðu Ríkisendurskoðunar kemur fram, að stofnunin hafi sent innanríkisráðuneytinu bréf þar sem ýmsum athugasemdum ráðuneytisins og embættis ríkislögreglustjóra við ábendinguna sé svarað. Þar sé því einnig fagnað að að ráðuneytið skuli taka undir það mat Ríkisendurskoðunar, að ekki séu í gildi nógu skýrar reglur um framkvæmd innkaupa hjá lögreglu og að það ætli að beita sér fyrir því að stofnanir þess hagi innkaupum sínum í samræmi við lög.
Í bréfinu til ráðuneytisins segir Ríkisendurskoðun m.a., að vandséð sé að hægt sé að halda því fram að í lok október 2009, þegar lögreglan pantaði búnað, hafi verið uppi aðkallandi neyðarástand sem hafi stafað af ófyrirsjáanlegum atburðum sem réttlættu að vikið væri frá meginreglum laga um opinber innkaup. Enda hafi greiningardeild ríkislögreglustjóra spáð fyrir um, að áfram yrði uppi það hættuástand, sem ríkt hafði í heilt ár og ríki enn að mati ríkislögreglustjóra.
„Loks vill Ríkisendurkoðun taka fram, að einmitt vegna þess að viðskipti löggæslustofnana við fyrirtæki sem tengjast lögreglumönnum eru óheppileg sökum þess að þau geta kallað á gagnrýni og sáð efasemdum og tortryggni í huga almennings í garð lögreglu, eins og ráðuneytið og (ríkislögreglustjóri) hafa bent á, er sérstaklega mikilvægt að vandað sé til slíkra innkaupa og ítrustu reglum fylgt í hvívetna," segir í bréfi Ríkisendurskoðunar.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 29. nóvember 2011, Innlent Heppilegra að fá annan
- Miðvikudagur, 28. september 2011, Innlent Ekki nægar skýringar á öllu
- Fimmtudagur, 29. september 2011, Innlent Lögregluskólinn leitar skýringa
- Miðvikudagur, 27. október 2010, Innlent Skrifstofa Alþingis endurskoði verklag við innkaup
- Föstudagur, 25. mars 2011, Innlent Bændasamtökin með of víðtækt hlutverk
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































