Sýknudómur ómerktur í kynferðisbrotamáli
Hæstiréttur hefur ómerkt sýknudóm Héraðsdóms Norðurlands vestra yfir manni sem var gefið að sök að hafa káfað innanklæða á 15 ára gamalli stúlku. Hæstiréttur hefur ómertk meðferð málsins frá upphafi aðalmeðferðar og vísað málinu heim í hérað til meðferðar á ný.
Fram kemur í dómi Hæstaréttar að héraðsdómur hafi ekki fellt dóm á málið með með tilliti til allra gagna sem fyrir honum lágu og verði að telja líkur á að niðurstaða héraðsdóms um sönnunargildi munnlegs framburðar fyrir dómi kunni að vera röng svo að einhverju skipti um úrslit málsins.
Manninum var gefið að sök að hafa í þvottahúsi á heimili sínu í maí í fyrra káfað tvisvar innanklæða á rassi stúlkunnar, sem þá var 15 ára gömul, strokið með fingrum um klof hennar innanklæða og í kjölfarið stungið þeim upp í sig og sagt að stúlkan væri flott.
Fram kemur að í héraðsdómi hafi verið komist að þeirri niðurstöðu að framburður vitna, sem hafi borið að stúlkan hafi sagt þeim frá atvikinu, sýnt að hún hafi verið sjálfri sér samkvæm. Á hinn bóginn hafi sá framburður ekkert sannað um hið ætlaða atvik, sem ekkert þessara vitna hafi sjálft séð. Það sama megi segja um sálfræðigögn sem lágu fyrir.
Hæstiréttur taldi að þessi ályktun héraðsdóms fengi ekki staðist, enda yrði við heildarmat á því hvort sönnun hefði verið færð fram af hálfu ákæruvaldsins um sakargiftir á hendur mannsins meðal annars að líta til óbeinna sönnunargagna, sem stutt gætu frásögn stúlkunna.
Héraðsdómur hafði einnig talið að ekki yrði litið framhjá eindregnum framburði sonar mannsins og var sýkna mannsins meðal annars á honum reist.
Hæstiréttur taldi aftur á móti að ekki yrði horft framhjá því að frásögn sonarins hefði í smáatriðum verið á sama veg og framburður föður hans. Sonurinn bar að um 10 sekúndur hefðu liðið frá því að hann vaknaði uns hann hefði verið kominn í gættina á þvottahúsinu þar sem faðir hans og stúlkan voru. Hæstiréttur tók fram varðandi þetta atriði að til þess væri að líta að sonur mannsins hefði verið á unglingsaldri og klukkan ekki orðin sex að morgni.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 31. mars 2011, Innlent Sýknaður af ákæru um kynferðisbrot
- Þriðjudagur, 22. mars 2011, Innlent Sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot
- Miðvikudagur, 22. júní 2011, Innlent Sýknaður af broti
- Fimmtudagur, 7. apríl 2011, Innlent Sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot
- Fimmtudagur, 12. maí 2011, Innlent 2 ára fangelsi fyrir nauðgun
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































