Mun klára aðildarviðræðurnar

Jóhanna Sigurðardóttir setur landsfund Samfylkingarinnar nú síðdegis. stækka

Jóhanna Sigurðardóttir setur landsfund Samfylkingarinnar nú síðdegis. mbl.is/Golli

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í setningarræðu sinni á landsfundi Samfylkingarinnar nú síðdegis að ríkisstjórnin mundi klára aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið.

„Við munum klára þetta mál. Til þessa verks vorum við kosin og því umboði verðum við trú, allt til enda," sagði Jóhanna. „Áður en gengið verður til kosninga verðum við að ljúka aðildarviðræðum okkar við ESB."

Hún sagði að Íslendingar hefðu alla möguleika á að sækja fram og hefja kraftmikla lífskjarasókn, ekki síst ef það tækist að ljúka aðildarviðræðunum á tilskildum tíma og þjóðin yrði sammála samfylkingarfólki um kosti aðildar.

„Tilraunir ESB-andstæðinga, meðal annars forystu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, hafa blessunarlega mistekist, að stöðva viðræðurnar áður en niðurstöður þeirra liggja fyrir. Vaxandi meirihluti þjóðarinnar vill klára viðræðurnar og sjá hvað í samningi gæti falist og hafnar því að fulltrúar flokkanna taki þann lýðræðislega rétt af þjóðinni," sagði Jóhanna.

Ungir jafnaðarmenn héldu minningarathöfn í upphafi landsfundarins um þá sem létu lífið í hryðjuverkaárásunum í ...

Ungir jafnaðarmenn héldu minningarathöfn í upphafi landsfundarins um þá sem létu lífið í hryðjuverkaárásunum í Úteyju og Ósló í sumar. mbl.is/Golli

Hvorki Sjálfstæðisflokkur né Framsóknarflokkur stjórntækur

Hún fjallaði talsvert um stjórnarandstöðuflokkana tvo og sagði m.a. að stefna þeirra ætti ekkert erindi við íslensku þjóðina lengur. Sagði Jóhanna að það hefði verið hugmyndafræði Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um hinn frjálsa, hagkvæma markað, sem átti að leysa málin ef eignagleðin fengi að ráða för, laus við óþarfa eftirlit og hömlur í nafni almannahagsmuna.

„Það var eignagleðin, eins og leiðtogi sjálfstæðismanna til 14 ára kaus að kalla græðgina, sem olli hruninu," sagði Jóhanna.

Hún sagði að hvorki Sjálfstæðisflokkur né Framsóknarflokkur væru stjórntækir fyrr en þeir  viðurkenndu ábyrgð sína, gerðu upp við hrunið og breyttu um stefnu í þeim grundvallarmálum sem hruninu ollu.

„Enn hefur ekkert uppgjör farið fram, en báðir flokkar og þau hagsmunaöfl sem að þeim standa leggja nótt við dag um að sannfæra þjóðina um að afleiðingar hrunsins megi skrifa á reikninga núverandi ríkisstjórnar," sagði Jóhanna. 

Aukinn jöfnuður bætir heilsu

Þá sagði Jóhanna að með auknum jöfnuði ykist traust og samstaða fólks í samfélaginu.

„Glæpum mun fækka, streita mun minnka, geðsjúkdómar, hjartasjúkdómar, vímuefnaneysla, næringarvandamál og fleiri þekkt einkenni velmegunarsamfélags munu minnka samhliða auknum jöfnuði. Það munu niðurstöður Richards Wilkinsons sýna okkur fram á hér á landsfundinum," sagði Jóhanna.

Efnahagsleg og samfélagsleg nauðsyn

Jóhanna sagði að ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingarinnar og VG markaði ekki aðeins söguleg þáttaskil heldur hefði árangur hennar sýnt að hún hefði verið efnahagsleg og söguleg nauðsyn.

„Þrátt fyrir ýmsar erfiðar uppákomur og þrátt fyrir að kvarnast hafi úr meirihlutanum vegna brotthvarfs úr þingflokki samstarfsflokksins hefur samstarfið gengið vel og það hefur verið ótrúlega árangursríkt," sagði hún.

PDF-skrá Setningarræða Jóhönnu Sigurðardóttur
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gönguskór
Fóðraðir gönguskór til sölu nr. 49-50 Upplýsingar í síma 8935005...
Mercedes Benz 500 SE árg 1990
Til sölu góður og vel með farinn Mercedes Benz 500 SE árg 1990 ekinn 239.000 Bíl...
SAUMAVÉLAR
Saumavélar- saumavélaviðgerðir Nýjar og notaðar...
Toyota Yaris árgerð 2006 DIESEL !!!
Toyota Yaris Diesel árgerð 07/2006. Ekinn 79.000 km. Sjálfskiptur. 5 dyra. Sil...
 
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...