Fréttaskýring: Ólíkar mælingar á atvinnuleysisdraugnum
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Að meðaltali voru 10.700 manns án atvinnu og í atvinnuleit á þriðja ársfjórðungi þessa árs eða 5,9% vinnuaflsins skv. vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar. Mánaðarlegar atvinnuleysistölur Vinnumálastofnunar sýna hins vegar 6,6% og 6,7% atvinnuleysi í þessum mánuðum. Þessi munur hefur vakið spurningar um raunverulegt atvinnuleysi á landinu og af hverju munurinn á atvinnuleysistölum þessara tveggja stofnana stafar.
Skýringin liggur í því að notaðar eru ólíkar aðferðir við að afla þessara upplýsinga og í raun og veru eru stofnanirnar tvær ekki að mæla nákvæmlega það sama, skv. upplýsingum Ólafs Más Sigurðssonar hjá atvinnu- og félagsmáladeild Hagstofunnar. Mismunandi prósentutölur Hagstofunnar og Vinnumálastofnunar stafa af því að reiknað er út frá ólíkum tölum um mannafla á vinnumarkaði.
Tölur Vinnumálastofnunar ná yfir þá sem hafa skráð sig án atvinnu og njóta atvinnuleysisbóta. Hagstofan kannar hins vegar atvinnuástandið með úrtakskönnun meðal landsmanna (16-74 ára) og að þessu sinni fengust nothæf svör frá 3.209 einstaklingum. Vinnumálastofnun mælir skráð atvinnuleysi og verða menn að uppfylla skilyrði skráningar á hverjum tíma til að teljast atvinnulausir.
„Opinber skráning atvinnuleysis getur því verið nokkuð viðkvæm fyrir stjórnvaldsákvörðunum. Með einfaldri reglugerðarbreytingu er hægt að minnka eða auka atvinnuleysi, án þess að nein breyting hafi átt sér stað í atvinnulífinu,“ segir í skýringum sem Ólafur hefur tekið saman.
Hagstofan notar alþjóðlegar skilgreiningar. Teljast þeir atvinnulausir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu sem launþegi eða sjálfstætt starfandi, segjast vera að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan þriggja mánaða. Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla þessi skilyrði.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 18. janúar 2012, Innlent Dregur úr langtímaatvinnuleysi
- Miðvikudagur, 19. október 2011, Innlent 10.700 án atvinnu
- Þriðjudagur, 15. maí 2012, Innlent 6,5% atvinnuleysi
- Mánudagur, 20. febrúar 2012, Innlent Langtímaatvinnulausum fjölgar
- Þriðjudagur, 15. febrúar 2011, Innlent Þriðja hvert heimili fundið fyrir atvinnuleysi
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































