Stuðningur skilar árangri í A-Afríku

Frá Sómalíu stækka

Frá Sómalíu Reuters

Rúmlega 11.600 Íslendingar studdu söfnun UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, vegna þurrkana í Austur-Afríku. Aðstoð UNICEF á heimsvísu þýddi að nærri 10 þúsund tonn af hjálpargögnum komust á vettvang þurrkasvæðanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá UNICEF á Íslandi.

Umfangsmiklar mannúðaraðgerðir á þurrkasvæðunum í Austur-Afríku hafa þegar skilað margvíslegum árangri en frekari aðgerða er þörf til að koma í veg fyrir að hundruð þúsunda barna láti lífið af völdum vannæringar og sjúkdóma.

„Við höfum bjargað mörgum börnum í Sómalíu, í flóttamannabúðunum í nágrannaríkjunum, sem og á öðrum svæðum í Keníu, Eþíópíu og Djíbútí þar sem langvarandi þurrkar, stigvaxandi matvælaverð og átök hafa valdið vandræðum,“ segir Elhadj As Sy, svæðisstjóri UNICEF fyrir austur- og suðurhluta Afríku í tilkynningu.

Hjálpargögn til Austur-Afríku

Hjálpargögn til Austur-Afríku

„Sökum stærðargráðu ástandsins þurfum við enn að auka við neyðaraðstoð okkar og á sama tíma leggja grunn að langtíma þróunarverkefnum til að fyrirbyggja að hörmuleg ógæfa sem þessi eigi sér stað að nýju.“

Í nýrri skýrslu kemur fram að hægt hafi verið að meðhöndla 108.000 börn gegn vannæringu, 1,2 milljónir barna hafa verið bólusett gegn mislingum.  2,2 milljónir manna hafa fengið aðgang að hreinu vatni og 48.000 börnum hefur verið tryggður aðgangur að barnvænum svæðum eða öðru öruggu umhverfi.

Spár fyrir regntímabilið frá október og fram í desember gefa til kynna að fæðuöryggi gæti aukist í Keníu og Eþíópíu. Reynslan sýnir á hinn bóginn að regntímabil sem koma eftir mikla þurrka auka hættuna á flóðum og útbreiðslu lífshættulegra sjúkdóma á borð við kóleru og malaríu.

Í Sómalíu er ástandið afar slæmt og umfangsmikilla aðgerða er þörf. Góðu fréttirnar eru að í suður- og miðhluta Sómalíu, þar sem aðgangur mannúðarsamtaka er takmarkaður, hefur UNICEF náð til 350.000 manna. „Neyðarástandinu er langt í frá lokið og það mun ríkja vel fram á árið 2012,“ segir Elhadj As Sy hjá UNICEF, enn fremur í tilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu ljósakróna
Mjög vel með farin ljósakróna frá Home Art kr. 5000,- Upplýsingar í síma 6633-0...
Hæðarkíkir - þrífótur - stika
Til sölu hæðarkíkir Leica Runner 20, þrífótur og stika. Verð 40000...
Viking 1706 Fellihýsi til sölu
Er með vel farið Viking fellihýsi 2000 árgerð til sölu, 8,5 fet. Skoðað 2013. He...
Yaris T-Sport 2007!!!!
Ek. 64 þús. 17'' felgur. Filmur. Xenon. Nýir diskar og klossar. Eins og nýr! Mjö...
 
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...