Verjast frétta af rannsókninni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verst allra frétta af rannsókn sinni á ráni sem var framið í úra- og skartgripaverslun Michelsen sl. mánudag. Lögreglan segir að rannsókninni miði ágætlega áfram en gefur ekki frekari upplýsingar um málið.
Lögreglan segir að tilkynning verði send á fjölmiðla þegar hægt verði að upplýsa nánar um framgang málsins, en ekki sé von á nýjum tíðindum fyrir helgi.
Lögreglan á í samskiptum við erlend lögregluyfirvöld í tengslum við rannsóknina en svipuð rán hafa verið framin víðar í Evrópu á undanförnum vikum og mánuðum.
Þrír menn vopnaðir byssum frömdu rán í versluninni sl. mánudagsmorgun. Tvær byssur hafa fundist og voru þær báðar eftirlíkingar. Franch Michelsen úrsmíðameistari sagði í samtali við mbl.is að hann hefði heyrt skothvell þegar ræningjarnir voru inni í versluninni, en ekki liggur fyrir hvort skoti af verið hleypt af úr raunverulegri skammbyssu eður ei. Þeir komust undan með fjölmörg úr, m.a. af gerðinni Rolex, Tudor og Michelsen. Tjónið er gríðarlegt að sögn Franchs.
Fram hefur komið í Morgunblaðinu að samkvæmt heimildum séu ræningjarnir jafnvel taldir hafa farið úr landi síðdegis á mánudag eða þriðjudagsmorgun, þrátt fyrir að eftirlit á Keflavíkurflugvelli hafi verið hert.
Rannsókn lögreglunnar er enn í fullum gangi og sömu heimildir herma að mennirnir hafi haft þrjá til fjóra bíla til umráða umræddan morgun. Einn hafi þeir skilið eftir á Vegamótastíg í gangi og farið á öðrum að Smáragötu. Þar sá vitni þá skipta um bíl.
Þá hefur rannsókn á byssunum sem notaðar voru leitt í ljós að þær voru keyptar í verslun á höfuðborgarsvæðinu.
Bloggað um fréttina
-
Guðlaugur Hermannsson Getur verið að þessi maður á mynd löggunar hafi allt ... -
Rafn Haraldur Sigurðsson Fréttabanninu mér að kenna -
Haraldur Haraldsson Verjast frétta af rannsókninni/Já þetta leysist ekki í blöðunum,en samt ...
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 19. október 2011, Innlent Lögregla viðbúin á Seyðisfirði
- Mánudagur, 17. október 2011, Innlent Hugsanlegur flóttabíll fundinn
- Miðvikudagur, 19. október 2011, Innlent Með myndir af ræningjunum
- Mánudagur, 17. október 2011, Innlent Ræningja og þýfis enn leitað
- Þriðjudagur, 18. október 2011, Innlent Vísar bakpoki á ræningja?
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































