Mótmæla sölu veiðileyfa í afrétti
Skotvís furðar sig á þeirri ákvörðun sveitarstjórnar Húnaþings vestra að ætla á komandi rjúpnaveiðitímabili að selja rjúpnaveiðileyfi í afrétti. Telur félagið alls óvíst að löndin teljist til eignarlands.
Sveitarstjóri Húnaþings vestra hefur auglýst að sveitarstjórn selji veiðileyfi fyrir rjúpnaveiðar á Víðidalstunguheiði, Tvídægru og Arnarvatnsheiði og að þeim sem ekki hafi keypt leyfi sé óheimilt að fara þangað til veiða.
Húnaþing hefur undanfarin ár auglýst sölu veiðileyfa og hafa spunnist um það deilur. Meðal annars voru bréfaskriftir milli Skotvís og sveitarfélagsins sl. vetur.
Skotvís vísar í villidýralögin og telur að öllum Íslendingum sé heimilt að veiða dýr í almenningum, á afréttum utan landareigna lögbýla, enda geti enginn sannað eignarrétt sinn til þeirra. Ekki hefur verið fjallað um umrætt svæði í óbyggðanefnd.
Skotvís hefur óskað eftir gögnum frá sveitarfélaginu um eignarhald svæðisins en Húnaþing vestra telur ótvírætt að það fari með eignarhald á svæðinu. Sveitarfélagið telur sér ekki skylt að afla eða leggja fram gögn sem staðfesta það. Það upplýsir þó að unnið sé að upplýsingaöflun vegna væntanlegra krafna ríkisins um mörk þjóðlenda. Þeirri vinnu sé ekki lokið og ekki tímabært að leggja þau fram.
„Viðbrögð sveitarfélagsins við kurteislegri beiðni Skotvís er því ekki hægt að túlka á annan veg en að um grófa aðför sé að ræða að rétti almennings til veiða og það ber að fordæma. Því hvetur Skotvís alla þá sem veiða á umræddum svæðum og lenda í útistöðum við meinta landeigendur að kalla sýslumann á vettvang,“ segir í tilkynningu Skotvís.
Rjúpnaveiðin hefst um næstu helgi.
Bloggað um fréttina
-
Kristján M Önundarson Hver á himinhvolfið sem fuglinn flýgur í ? -
Matthildur Jóhannsdóttir Ríkið á bæði Þröm og Eldjárnstaði sem átti stæðstan hluta ... -
Þorsteinn H. Gunnarsson Engin eignarheimild á landi aðeins afréttarnot -
Jóhannes Ragnarsson Hinir huglausu nískupúkar í Skotvíshernum -
Davíð Þ. Löve Frekja og yfirgangur!
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 3. janúar 2012, Innlent Mótmæla algjöru veiðibanni
- Sunnudagur, 23. október 2011, Innlent Selja veiðileyfi í afrétti
- Laugardagur, 5. febrúar 2011, Innlent Samráð um þjóðgarða mikilvægt
- Þriðjudagur, 8. maí 2012, Innlent Skeljungur fær lóð í Miðfirði
- Mánudagur, 13. febrúar 2012, Innlent Dreifa peningum í samfélaginu
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































