Harmar afsögn stjórnarinnar

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon. mbl.is/Golli

„Mér þykir  miður að þau skuli telja sig þurfa að grípa til þessa ráðs,  segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um afsögn stjórnar Bankasýslu ríkisins í kjölfar umdeildrar ráðningar Páls Magnússonar í starf forstjóra hennar.

Steingrímur segir að ekki sé annað í stöðunni en að una niðurstöðu stjórnarinnar og vinna úr þeirri stöðu sem upp sé komin með því að skipa Bankasýslunni nýja stjórn, eins og beri lögum samkvæmt.  Reynt verði að leysa málin þannig að þau valdi sem minnstri truflun á starfsemi stofnunarinnar.

Stjórn Bankasýslunnar vísar til þess að utanaðkomandi afskipti hafi gert henni ókleift að starfa áfram. „Hún hlýtur að hafa verið að vísa til einhvers annars en fjármálaráðuneytisins í þeim efnum,“ segir Steingrímur aðspurður. „Því að okkar formlegu afskipti hafa eingöngu verið þau að við skrifuðum og báðum um upplýsingar og rökstuðning.“ Hins vegar sé ljóst að mikilvægt sé að ró sé um starfsemi af slíku tagi.

Spurður um þýðingu afsagnarinnar fyrir nýráðinn forstjóra Pál Magnússon segir Steingrímur að það verði bara að bíða og sjá en er ekki tilbúinn að ræða það frekar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert