Fréttaskýring: Heill árgangur ákvað að yfirgefa skólann

Efna á til samkeppni um nafn á sameinuðum skóla. Þessi mynd var tekin eftir skólasetningu ... stækka

Efna á til samkeppni um nafn á sameinuðum skóla. Þessi mynd var tekin eftir skólasetningu Hvassaleitisskóla haustið 2009. mbl.is/Heiddi

Morgunblaðið Rúnar Pálmason runarp@mbl.is

Þótt sameining Hvassaleitisskóla og Álftamýrarskóla í Reykjavík sé ekki orðin að veruleika hafa áhrifin ekki látið á sér standa því í haust færði nánast heill árgangur sig úr Hvassaleitisskóla yfir í Réttarholtsskóla. Brotthvarfið þykir hafa bitnað á skólabragnum. Ekki er að sjá að sátt sé að takast um sameininguna.

Töluverður titringur er nú meðal foreldra barna í Hvassaleitisskóla vegna þess að skólastjóri verður brátt ráðinn til að stýra sameinuðum skóla. Foreldrafélag Hvassaleitisskóla ályktaði sérstaklega um að nýr skólastjóri yrði fenginn að verkinu sem hefði hvorugum skólanum stjórnað áður. Svo vill hins vegar til að skólastjóri Álftamýrarskóla sótti um en ekki starfssystir hennar í Hvassaleitisskóla.

Meðal þess sem felst í sameiningunni er að unglingadeildin verður flutt úr Hvassaleitisskóla fyrir skólaárið 2012-2013. Foreldrar geta valið um að senda börnin annaðhvort í Álftamýrarskóla eða Réttarholtsskóla.

Í Álftamýrarskóla er kennt í 1.-10. bekk en Réttarholtsskóli er safnskóli fyrir 8.-10. bekk. Þetta réði því í flestum tilvikum að langflestir foreldrar barna í Hvassaleitisskóla sem byrjuðu í 8. bekk í haust ákváðu að börn þeirra myndu fara yfir í Réttarholtsskóla strax í haust. Aðeins einn nemandi í árganginum varð eftir. Hann situr kennslustundir með 9. bekkingum og fær einnig séraðstoð.

Þórunn Kristinsdóttir, skólastjóri Hvassaleitisskóla, segir að það hafi orðið ljóst rétt fyrir skólaslit í vor að enginn 8. bekkur yrði í skólanum í haust. Þetta hafi verið val foreldra en flutningurinn hafi ekki verið á dagskrá af hálfu borgaryfirvalda fyrr en næsta haust. „Foreldrar vildu að nemendur myndu byrja á sama grunni og nemendur úr Fossvogsskóla og Breiðagerðisskóla og það er í sjálfu sér mjög skiljanlegt,“ segir hún.

Áhrifin hafi m.a. verið þau að kennarar hafi ekki fengið þá kennslu sem þeir reiknuðu með að fá og fengu því lægra starfshlutfall. Heldur hafi dofnað yfir félagslífinu og skólabragnum, enda muni um heilan árgang í unglingadeild. Til mótvægis hafa tengslin við Álftamýrarskóla og Réttarholtsskóla verið efld að þessu leyti, m.a. með sameiginlegum skólaskemmtunum.

En það er ekki nóg með að heill árangur hafi flutt sig um set, um 20 nemendur, heldur fóru fjórir 9. bekkingar einnig yfir. Nemendur sem komu úr öðrum skólahverfum fluttu sig einnig um set í nokkrum tilvikum. Þórunn segir að nokkuð hafi verið um að nemendur úr öðrum hverfum hafi gengið í Hvassaleitisskóla enda hafi faglegt starf þar verið traust og skólinn komið vel út úr námskönnunum. Vegna þessa alls sé óljóst hversu margir nemendur verði í sameinuðum skóla.

Skólastjóri yfir sameinuðum skóla verður ráðinn frá og með 1. janúar. Þórunn hefur greint foreldrum frá því að hún muni ekki sækja um. Hún segir afar mikilvægt að nýr skólastjóri komi að starfi stýrihóps um sameininguna sem allra fyrst en fólki þyki sem starfi stýrihópsins hafi miðað heldur hægt.

Vinna að áætlun

Stýrihópurinn sem um ræðir var stofnaður 15. maí. Hann hefur ekki enn gert verk- og tímaáætlun um sameiningarferlið. Auður Árný Stefánsdóttir, formaður hópsins, segir að verið sé að vinna hana. Fyrst hafi þurft að greina verkefnið og forgangsraða verkefnum.

Óvissa um framhaldið

Birgitta Ásgrímsdóttir, formaður Foreldrafélags Hvassaleitisskóla, segir að foreldrum finnist mikil óvissa vera um framgang sameiningarinnar og þeir séu reiðir vegna þess að þeir fái litlar upplýsingar um hvað taki við um áramótin þegar sameiningin á að ganga í gegn. „Það hefur ekkert haldbært komið fram, engar verkáætlanir eða tímaáætlanir,“ segir hún. Foreldrafélagið hafi í vor hvatt til þess að nýr skólastjóri yrði ráðinn strax í haust til að taka þátt í vinnu við sameininguna en borgin ekki fallist á það.

Birgitta segir að ástæðan fyrir því að foreldrafélagið vilji að nýr skólastjóri, þ.e. hvorki skólastjóri Hvassaleitisskóla né Álftamýrarskóla, verði ráðinn til að stýra sameinuðum skóla, sé sú að skólarnir séu mjög ólíkir. Með því að fá nýjan stjórnanda verði á hvorugan skólann hallað.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Slökkvitæki fyrir sumarbústaðinn
Vegna magninnkaupa bjóðum við nokkrar gerðir slökkvitækja á ótrúlegu verði í tak...
Til leigu 2-4 m sumarhús í Hvalfirði
Vel búin, gasgrill og heitur pottur. Frábært útsýni. Fjölbreytt afþreying í nágr...
58 fermetrar
Til leigu húsnæði á annari hæð í Dugguvogi 6 (Fossberg) Eitt rými með litlum el...
Ljósavélar í báta og skip 10 -1000 kw
Útvegum allar gerðir af ljósavélum, Cummins, Perkins, fl,. teg Stamford , leory ...
 
Aðstoðarskólastjóri
Leikskólakennsla
Aðstoðarskólastj...
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...