RÚV gefi skýrslu um ferðir starfsmanna
„Hvernig væri að gefa nú skýrslu um ferðir starfsmanna Ríkisútvarpsins,“ spyr Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra í pistli á bloggsíðu sinni. Tilefni skrifanna er það, að nýverið óskaði RÚV eftir upplýsingum um för Ögmundar til Mexíkó, þar sem hann sótti ráðstefnu um samgöngumál.
Svörin við spurningum RÚV voru birt á vef innanríkisráðuneytisins í gær.
Ögmundur segir að RÚV myndi sýna einlægan vilja í verki með því að birta upplýsingar um ferðir starfsmanna stofnunarinnar.
Hvernig væri að Óðinn [Jónsson] fréttastjóri gerði grein fyrir sjálfum sér og sinna starfsmanna á undanförnu ári? Páll [Magnússon] útvarpsstjóri mætti einnig gefa okkur skýrslu um sig og sína skrifstofu. Þetta er sagt í fullri alvöru,“ skrifar Ögmundur.
„Síðan væri verðugt rannsóknarefni að kanna ferðakostnað vegna ESB viðræðna, í stjórnsýslu, í ráðuneytum, á Alþingi, í fjölmiðlum, þ.á.m. RÚV. Ríkisútvarpið hefur sagt A. Nú verður varla látið staðar numið? Eða hvað, Óðinn og Páll,“ spyr innanríkisráðherra.
Ögmundur segist ekki gera minnstu athugasemd við það að fréttastofa RÚV vilji vita hvernig farið sé með skattfé almennings. Það sé hlutverk fjölmiðla að veita aðhald.
„Það er helst að ég staldri við þann skilning Ríkisútvarpsins að þátttaka í alþjóðasamstarfi hljóti fyrst og fremst að byggja á því að flytja þekkingu af ráðstefnum til síns heima en virðist ekki koma auga á þann möguleika að fulltrúar séu sjálfir veitendur, taki m.ö.o. þátt í umræðu og leggi til málanna,“ skrifar Ögmundur.
RÚV spurði ráðherrann m.a. að því hvernig sú þekking, sem skilaði sér til fundarmanna, yrði varðveitt í ráðuneytinu, t.d. eftir að ráðherrann láti sjálfur af embætti.
„Ég geri ekki heldur athugasemd við að Ríkisútvarpið skuli hefja rannsóknarfréttamennsku sína á mér. Einhvers staðar þarf að byrja. Fróðlegt verður að fylgjast með framhaldinu,“ skrifar hann ennfremur.
Ögmundur gagnrýnir einnig á vef sínum hvernig vefmiðillinn eyjan.is sagði frá málinu.
http://ogmundur.is/
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson RÚV gefi skýrslu um ferðir starfsmanna/Ögmundi heitt í hamsi !!!!!!Er ... -
Heimir L Fjeldsted Pottur brotinn? -
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir Gott hjá þér Ögmundur, nú er ég ánægð með þig.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 11. desember 2011, Innlent Undarleg tímasetning ASÍ
- Mánudagur, 24. október 2011, Innlent Ögmundur í sex utanlandsferðir
- Föstudagur, 9. desember 2011, Innlent Krefja Ögmund um fjórar milljónir
- Laugardagur, 26. febrúar 2011, Innlent Lærðu ekki af Skotum
- Þriðjudagur, 27. mars 2012, Innlent Spyr um samskipti RÚV við ESB
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































