Stofna fræðasetur á Akranesi
Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum í gær að stofna fræðasetur um keltnesk fræði á Akranesi með aðsetur á safnasvæðinu á Akranesi.
Í fréttatilkynningu kemur fram að bent hafi verið á að á Akranesi og í næsta nágrenni séu keltnesk áhrif áberandi, m.a. í örnefnum á svæðinu.
„Áhugi fræðimanna á þessum þætti Íslandssögunnar, þ.e. landnámi og áhrifum kelta á Íslandi hefur aukist mjög á undanförnum árum og er þess vænst að hið nýja fræðasetur um keltnesk fræði á Akranesi verði farvegur fyrir frekari rannsóknir og lifandi umræður um þetta áhugaverða efni. Vitað er að fræðimenn greinir nokkuð á um margt er þetta varðar og er þess vænst að fræðasetrið á Akranesi verði vettvangur lifandi umræðu um þessi málefni og ýmis önnur sem því tengjast með beinum og óbeinum hætti.
Tilgangur setursins er m.a. að sinna fræðslu um sögu Akraness, íslenska menningarsögu og nágrannalandanna og stuðla að iðkun fræða og samstarfi innlendra og erlendra fræðastofnana innan vébanda setursins. Fræðasetrið mun einnig veita ráðgjöf og stuðning fyrirtækjum sem vilja nýta sér menningarsöguna í sinni starfsemi, hvetja til rannsókna, afla heimilda um mannlíf og náttúru, stuðla að verndun menningar- og náttúruminja og sinna kynningar- og útgáfustarfsemi svo og sýningum og gegna upplýsingahlutverki gagnvart gestum og ferðamönnum um þessi efni. Gert er ráð fyrir að fræðasetrið verði staðsett á Safnasvæðinu á Akranesi, en á næstu vikum verður unnið að frekari undirbúningi og hugað að verkefnum og samstarfi við ýmsa aðila," segir í tilkynningu.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 24. maí 2012, Innlent Íbúar greiða atkvæði um sameiningu
- Þriðjudagur, 1. mars 2011, Innlent Hurðarbak vaktað fram eftir nóttu
- Föstudagur, 24. febrúar 2012, Innlent Styrkir til velferðarmála
- Miðvikudagur, 19. janúar 2011, Innlent Kjósa um verkfall á Akranesi
- Þriðjudagur, 16. ágúst 2011, Innlent Grunaður um fíkniefnaakstur
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































