500 milljarðar til í búinu

Frá blaðamannafundi slitastjórnar Landsbankans stækka

Frá blaðamannafundi slitastjórnar Landsbankans mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Ekki hefur verið ákveðið endanlega hvenær verður byrjað að greiða breskum og hollenskum stjórnvöldum inn á forgangskröfur. Þetta kom fram á blaðamannafundi slitastjórnar Landsbankans.

Slitastjórn Landsbankans mun halda fund með kröfuhöfum þann 17. nóvember nk. og þá verður væntanlega farið yfir stöðu mála og það hvenær greitt verði úr búinu en reikna þarf út hverja og einustu kröfu. Ekki liggur hins vegar fyrir hvenær verður búið að leysa úr öllum álitamálum en þegar það verður í höfn mun ekki taka langan tíma að klára útgreiðslur.

Enn er heilmikil vinna eftir og eignasölu er ekki lokið, að sögn slitastjórnar Landsbankans. Slitastjórnin á von á því að einhver ágreiningsmál eigi eftir að enda fyrir dómstólum og jafnvel fara alla leið í Hæstarétt.

Ómögulegt sé að tala um hvað það taki langan tíma að ljúka skiptunum en erlendis er ekki óalgengt að slit á jafn stórum málum taki allt að 10-20 ár en vonir standa til að það taki ekki svo langan tíma í tilviki Landsbankans.

Laust fé þrotabúsins er nærri 500 milljörðum króna eins og staðan er nú. Hluta af því verður haldið til hliðar vegna krafna sem ekki hefur verið leyst úr. Þar á meðal  eru forgangskröfur. Væntanlega verða greiddar nú út í kringum 400 milljarðar króna til Breta og Hollendinga.

Herdís Hallmarsdóttir, formaður slitastjórnar Landsbankans, segir að niðurstaða Hæstaréttar standi hvað Landsbankann varðar enda niðurstaða Hæstaréttar endanleg. Um fjölskipaðan dóm var að ræða þar sem sex dómarar af sjö komust að þessari niðurstöðu.

Hún segir að ef dómurinn hefði fallið á annan veg þá hefði Landsbankinn greitt forgangskröfur að fullu en þær hefðu verið lægri ef það hefði verið niðurstaðan. Það sé hlutverk slitastjórnar að fara að lögum og nú hafi það verið staðfest af Hæstarétti að neyðarlögin standist.

Ekki hægt að gera nauðarsamninga fyrr en búið er að greiða forgangskröfur og þær eru óvenjuháar í hlutfalli við aðrar kröfur.

Ef niðurstaðan hefði verið önnur en þessi þá hefði verið unnið samkvæmt henni en nefndarmenn segjast ánægðir með að þetta var niðurstaðan. Dómurinn sé grundvöllur þess að það liggi fyrir hverjir eru forgangshafar og skiptir því verulegu máli varðandi framvindu skilanna. Það hafi verið forgangsverkefni hjá slitastjórninni strax í upphafi að koma málinu sem fyrst fyrir dóm svo ekki þyrfti að bíða of lengi eftir niðurstöðu.

Ekki liggur fyrir hversu miklar almennu kröfurnar verða en þær hefðu orðið mun hærri ef neyðarlögin hefðu ekki staðist.

Fram kom á blaðamannafundi slitastjórnar Landsbankans að Icesave-krafan er um 1.320 milljarðar króna en ekki er um endanlega tölu en væntanlega verður ekki um stórkostleg frávik frá þeirri fjárhæð að ræða.

Um tvö hundruð heildsöluinnlán og 1.200 önnur mál bíða nú úrlausnar. Heildarfjárhæð heildsölulánanna eru um 160 milljarðar króna. Þetta er hluti af þeim 1.320 milljörðum króna sem um ræðir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Leiðiskrossar til sölu
Mjög fallegir leiðiskrossar til sölu galvanseraðir og pólýhúðaðir. Upplýsingar í...
Open ljósaskilti
Mjög áberandi Open ljósaskilti til sölu. Ljósin blikka og fara ekki framhjá nein...
PORSCHE CAYENNE Sport 2004
Eldsneyti / VélBensín 8 strokkar4.500 cc.351 hö. 2.305 kg.Drif / Stýrisbúnaður...
Sumarbústaður í sveit www.hrosshagi.com
Til leigu vel búinn bústaður f. 4-6 manns í Biskupstungum. Heitur pottur, gasgri...
 
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...