Biskup fraus á æskulýðsmóti

Frá setningu landsmóts æskulýðsfélaga kirkjunnar í gærkvöld.
Frá setningu landsmóts æskulýðsfélaga kirkjunnar í gærkvöld. Ljósmynd/Árni Svanur Daníelsson

Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar var sett á Selfossi í gærkvöldi. Um 500 unglingar og leiðtogar koma þar saman til að gleðjast, fræðast og safna fé fyrir jafnaldra sína í Japan.

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, setti landsmótið og þakkaði unglingunum fyrir gott starf og góðan hug: „Nú veit ég af góðverkahelgi landsmótsins. Þar munuð þið leggja mikið af mörkum til þeirra sem treysta á aðstoð. Ég veit að hérna inni eru mörg gullhjörtu, sem bera umhyggju fyrir öðrum og láta gott af sér leiða,“ sagði biskup í ávarpi til unga fólksins.

Í setningarræðu sinni tók Karl biskup ásamt leiðtogum á landsmótinu þátt í flash-mob á vegum LÆK og fraus í tæpa mínútu við mikinn fögnuð unglinganna. LÆK er leiklistarstarf æskulýðsstarfs kirkjunnar. Það hefur starfað í sumar og sett upp gjörninga á 17. júní og menningarnótt sem tókust vel.

Unglingar á landsmótinu ætla að safna peningum til styrktar jafnöldrum sínum í Japan sem eiga um sárt að binda eftir jarðskjálftann fyrr á þessu ári. Unglingarnir í æskulýðsfélaginu Kýros á Vopnafirði hófu söfnun í síðustu viku og þau afhentu 60.000 krónur við setninguna. Unglingarnir frá Vopnafirði útdeildu líka rauðum hjörtum sem á stóð: „Ég er vinur“. Vinavikan á Vopnafirði hefur þannig breiðst út um allt land í gegnum landsmótið á Selfossi.

Tugir sjálfboðaliða starfa á landsmótinu

Tugir sjálfboðaliða hafa undirbúið landsmótið í eitt ár og starfa á því. „Án þeirra gætum við ekki haldið svona veglegt landsmót,“ segir Rakel Brynjólfsdóttir, landsmótsstjóri. Í gærkvöld var kvöldvaka og að henni lokinni var á dagskrá sundlaugarpartý í sundlaug Selfoss. Þar söng Ingó og lék fyrir unglingana á landsmótinu. Á sama tíma stóð NeDó Sport fyrir íþróttadagskrá. Landsmótinu lýkur á sunnudag með messu í Selfosskirkju.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert