Búið að leggja Suðurstrandarveg
Malbikunar-framkvæmdum á Suðurstrandarvegi lauk í gær og þar með er komið bundið slitlag frá Þorlákshöfn alla leið til Grindavíkur. Þetta kemur fram á Sunnlenska fréttavefnum.
Suðurstrandarvegur átti ekki að verða tilbúinn fyrr en í september 2012 og eru framkvæmdirnar því tæpu ári á undan áætlun. Sunnlendingar fagna þessu því þeir hafa beðið nýs Suðurstrandarvegar með eftirvæntingu um langt skeið, enda verður hann mikil bylting í samgöngum. Að sögn Sunnlenska búast íbúar í Grindavík og á Reykjanesi við því að umferð þangað muni margfaldast við opnun vegarins.
Róbert Ragnarsson, bæjarstjórinn í Grindavík, segir að vegurinn muni breyta talsverðu fyrir Suðurland og Suðurnesin.
„Þetta mun væntanlega hafa mjög mikil áhrif á ferðaþjónustuna. Þegar fólk kemur til landsins hefur það val um að fara strax á Suðurlandið í stað þess að fara um höfuðborgarsvæðið. Eins skapar þetta möguleika á skemmtilegum dagsferðum frá t.d. höfuðborgarsvæðinu. “
Vegurinn milli Þorlákshafnar og Grindavíkur er 58 kílómetra langur. Búið er að leggja bundið slitlag sem áður segir en öllum frágangi s.s. við að setja upp stikur og annað er er þó ekki lokið og vegurinn ekki formlega verið opnaður samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Búið að leggja Suðurstrandarveg/þetta mjög gott mál,en hvernir er með ... -
Þorkell Guðnason Áfangi EN... gagnast ekki suðurströnd Íslands
Innlent »
- Leitarmenn kallaðir til baka
- Bensíngjöfin festist niðri
- Þröstur og Bragi jafnir
- Stöðvaður eftir ofsaakstur
- Alsírsku drengirnir áfrýja
- Listflug við Reykjavíkurflugvöll
- Ákærður fyrir að stinga mann
- Landsbjörg leitar enn að Ligitu
- Klára kvótamálin í vikunni
- Hreint hjarta besta myndin
- Mætti innbrotsþjófum í forstofunni
- Veðurblíða víða um land
- Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af
- Kosningamiðstöð Þóru opnuð
- Ferry heillaði í Hörpu
Sunnudagur, 27.5.2012
-
Peningar ekki rót alls ills
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 23. apríl 2012, Innlent Fylgst með umferð um Suðurstrandarveg
- Miðvikudagur, 10. ágúst 2011, Innlent Framkvæmdir við Suðurstrandarveg ganga vel
- Mánudagur, 11. október 2010, Innlent Strákagöng lokuð í nótt
- Mánudagur, 13. febrúar 2012, Innlent Hreppur leggur slitlag að bæjum
- Miðvikudagur, 24. ágúst 2011, Innlent Nýr formaður Vestnorræna ráðsins
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú


































