Blekktu þjófavarnir með álpappír
Hæstiréttur Íslands staðfesti á föstudag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir 17 ára gamalli stúlku, sem ásamt móður sinni er grunuð um stórfelldan þjófnað úr verslunum á höfuðborgarsvæðinu.
Mæðgurnar voru staðnar að verki við þjófnað í Smáralind þann 20. október. Reyndust þær hafa á sér þýfi að verðmæti rúmlega 200 þúsund króna. Af greinargerð lögreglu má ráða að mæðgurnar hafi verið sérstaklega útsmognar, en það vakti athygli lögreglu að þýfið var geymt í sérstaklega útbúnum poka, sem var fóðraður að innan með álpappír til að koma í veg fyrir að þjófavarnakerfi verslana næmu innihald hans. Þessar aðferðir sem mæðgurnar beittu gáfu lögreglu strax vísbendingar um að um skipulagða glæpastarfsemi væri að ræða.
Í ljósi þessa og að mæðgurnar höfðu áður komið við sögu hjá lögreglu var talin ástæða til að leita á heimili þeirra. Á heimili móðurinnar lagði lögregla hald á mikið magn af fötum sem sterkur grunur er á að hafi verið stolið úr verslunum, enda voru flest enn með merkimiða áfasta. Í íbúðinni fannst einnig 21 kannabisplanta í sérútbúnu herbergi ætluðu til ræktunar. Á heimili dótturinnar seinna um daginn fannst svo einnig talsvert magn af fatnaði sem einnig er talið vera þýfi.
Mæðgunum var sleppt að loknum yfirheyrslum en fjórum dögum síðar var gerð endurtekin húsleit heima hjá þeim og fannst þá mikið magn af fatnaði til viðbótar sem ekki hafði verið þar við fyrri leit. Ætlað þýfi sem fannst þá fyllti 40 svarta ruslapoka og áætlar lögregla að það sé um 10-15 milljóna króna virði enda um dýrar merkjavörur að ræða. Þá fannst í íbúð móðurinnar tæp hálf milljón króna í reiðufé.
Lögregla telur því líklegast að íbúðir mæðgnanna séu annaðhvort notaðar sem geymslupláss fyrir afrakstur skipulagðrar þjófnaðarstarfsemi eða þá að mæðgurnar hafi haldið áfram uppteknum hætti við þjófnað strax eftir að þeim var sleppt úr yfirheyrslu.
Mæðgurnar sæta báðar gæsluvarðhaldi til 2. nóvember og munu sitja í einangrun á meðan vegna rannsóknarhagsmuna.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 3. nóvember 2011, Innlent Þriðja konan handtekin
- Miðvikudagur, 2. nóvember 2011, Innlent Mæðgur brátt lausar úr haldi
- Miðvikudagur, 26. október 2011, Innlent Úrskurðaðar í gæsluvarðhald
- Fimmtudagur, 27. október 2011, Innlent Sex milljarðar tapast á hverju ári vegna þjófnaða
- Miðvikudagur, 19. janúar 2011, Innlent Gæsluvarðhald vegna innbrots staðfest
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































