Draga eigi úr skyldum biskups

Ríkisendurskoðun telur rétt að biskupsstofu verði skipt upp í tvær einingar stækka

Ríkisendurskoðun telur rétt að biskupsstofu verði skipt upp í tvær einingar mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkisendurskoðun leggur til ýmsar breytingar á innra skipulagi þjóðkirkjunnar í nýrri skýrslu. Meðal annars að dregið verði úr lagalegum skyldum biskups til að sinna fjármálaumsýslu.

Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar er fjallað um nokkra þætti í skipulagi og starfsemi þjóðkirkjunnar. Fram kemur að ekki hafi verið mörkuð heildstæð stefna um starfsemi Biskupsstofu og telur Ríkisendurskoðun brýnt að úr því verði bætt.

Biskupsstofu verði skipt upp í tvær einingar

Meðal annars þurfi að skilgreina markmið stofunnar og ákveða hvernig mæla eigi árangur hennar. Einnig þurfi að greina á milli trúarlegra málefna annars vegar og rekstrar og fjármála hins vegar í skipulagi hennar.

Því leggur Ríkisendurskoðun til að myndaðar verði tvær sjálfstæðar skipulagseiningar innan Biskupsstofu sem hvor hafi sinn yfirmann.

Ekki fer vel á því að biskup sé forseti kirkjuráðs

Kirkjuráð fer með framkvæmdarvald í málefnum þjóðkirkjunnar og tekur ýmsar ákvarðanir er varða fjárhag hennar og rekstur. Einnig úrskurðar það í málum sem því berast frá lægri stjórnsýslueiningum.

Biskup er forseti ráðsins en að mati Ríkisendurskoðunar fer ekki vel á því. Í fyrsta lagi takmarka umfangsmikil stjórnunarstörf þann tíma sem hann hefur til að sinna meginhlutverki sínu sem faglegur leiðtogi þjóðkirkjunnar.

Í öðru lagi er hætta á að biskup þurfi innan ráðsins að úrskurða um mál sem hann hafi áður komið að á lægra stjórnsýslustigi.

Því leggur Ríkisendurskoðun til að lögum verði breytt og dregið úr skyldum biskups til að sinna fjármálaumsýslu kirkjunnar. Hann sitji þó áfram í kirkjuráði og hafi þar málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt.

Leggja til sameiningu sjóða

Í skýrslunni er lagt til að helstu sjóðir kirkjunnar: Kirkjumálasjóður, Kristnisjóður og Jöfnunarsjóður sókna, verði sameinaðir. Þeir hafa það hlutverk að styrkja ýmis verkefni sem tengjast helgihaldi og þjónustu kirkjunnar.

Enn fremur telur Ríkisendurskoðun að móta þurfi skýrar reglur um styrki þar sem m.a. komi fram hvernig umsóknir séu metnar og hvernig fylgst sé með nýtingu styrkjanna.

Telja brýnt að setja reglur um lágmarksfjölda sóknarbarna í hverri sókn

Fram kemur að sóknir hér á landi séu samtals 273 og margar fámennar. Árið 2010 voru þannig 15 sóknir með 10 sóknarbörn eða færri og 145 með 100 sóknarbörn eða færri. Sóknirnar eru sjálfstæðar einingar en geta haft samstarf við aðrar sóknir innan sama prestakalls.

Ríkisendurskoðun telur brýnt að settar verði reglur um lágmarksfjölda sóknarbarna í hverri sókn til að stuðla að hagkvæmum rekstri og öflugu safnaðarstarfi. Að mati stofnunarinnar á þannig fremur að fækka sóknum og stækka þær en leitast við að auka samvinnu milli þeirra.

Loks telur Ríkisendurskoðun að sóknir eigi að fara með eignarhald prestssetra og sinna viðhaldi þeirra. Þau eru nú formlega í eigu Kirkjumálasjóðs en Biskupsstofa sinnir umsýslu með þeim.

Viðbrögð biskupsstofu

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Eigum á lager ýmsar , og útvegum allar stærðir af landrafstöðvum
10-15-30 kw dieselrafstöðvar á lager, útvegum aðrar stærðir. Deutz , Perkins, ...
Vor í Tungunum - www.eyjasolibudir.is
Falleg sumarhús til leigu um helgar og virka daga. Fallegt umhverfi. Heit laug o...
CANON EOS NÁMSKEIÐ - spennandi námskeið.
Kennum á CANON EOS vélar. Námskeið í hverjum mánuði. Í boði eru mislöng námskeið...
"IKEA"- hillur til sölu.
"IKEA" hillur til sölu. 5 stk. B 80cm, og D 50cm. Uppistöður 2 m. og krossband....
 
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Bæjarlögmaður
Sérfræðistörf
Bæjarlögmaður Kópavogsbær auglýsir stö...