Vilja að kjaraskerðing verði afturkölluð
Halldór Blöndal mbl.is/Halldór Kolbeins
Samband eldri sjálfstæðismanna (SES) leggur áherslu á að sú kjaraskerðing sem eldri borgarar urðu fyrir 1. júlí 2009, verði afturkölluð. Að þeir, sem náð hafa 70 ára aldri, geti aflað sér atvinnutekna án þess að greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins skerðist. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktum sem aðalfundur SES samþykkti nýverið.
Vilja að verðbætur á sparifé séu undanþegnar fjármagnstekjuskatti
SES fagnar efnahagstillögum Sjálfstæðisflokksins, en þær fela í sér endurreisn atvinnulífsins, vaxandi kaupmátt og lækkun skatta, samkvæmt ályktun SES.
„Nauðsynlegt er að ryðja á brott opinberum hindrunum, sem standa í vegi fyrir því að unnt sé að nýta auðlindir landsins til nýrrar atvinnustarfsemi og auka þannig afrakstur þjóðarbúsins en það er forsenda fyrir meiri velmegun öllum til handa . Atvinnuleysi er fylgifiskur hafta og stöðnunar og í slíku umhverfi verður velferðarkerfið ekki varið eins og komið er á daginn. Það kemur í hlut Sjálfstæðisflokksins að byggja velferðarkerfið upp að nýju og treysta grunnstoðir þess eins og jafnan eftir valdaferil vinstri stjórna.
Aðalfundur SES 2011 leggur áherslu á eftirfarandi í kjaramálum aldraðra: Að aldraðir haldi óskertum grunnlífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins. Að sú kjaraskerðing, sem eldri borgarar urðu fyrir 1. júlí 2009, verði afturkölluð. Að þeir, sem náð hafa 70 ára aldri, geti aflað sér atvinnutekna án þess að greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins skerðist.
Að ellilífeyrir verði leiðréttur til samræmis við þær hækkanir, sem orðið hafa á lægstu launum síðan í ársbyrjun 2009. Það er með öllu óásættanlegt að með þessum hætti skuli sérstaklega níðst á eldri borgurum og fordæmt, að enn eigi að skerða hlut þeirra í fjárlögum næsta árs.
Að verðbætur á sparifé séu undanþegnar fjármagnstekjuskatti og skerðingum hjá Tryggingastofnun ríkisins. Að lögum um almannatryggingar verði breytt á þann veg, að aldraðir geti selt eignir sínar án þess að andvirði þeirra valdi skerðingu á greiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins.
Að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur falli frá hugmyndum sínum um að lækka skattafrádrátt vegna viðbótarlífeyrissparnaðar úr 4% í 2%. Hér er um tvísköttun að ræða, sem dregur úr sparnaði en eykur eyðslu," segir í ályktun fundarins.
Vilja að efnt verði til ráðstefnu um kjör eldri borgara
Samtök eldri sjálfstæðismanna mótmælir harðlega síendurteknum skerðingum og álögum sem aldraðir hafa orðið fyrir í forsætisráðherratíð Jóhönnu Sigurðardóttur og lýsa ótrúlegu skeytingaleysi fyrir elstu borgurum þessa lands.
„Fundurinn beinir því til Landssambands eldri borgara að efna til ráðstefnu um kjör eldri borgara, þar sem staða þeirra verður skýrð, farið yfir þingmál, sem þá varða, og stefna mörkuð í hagsmuna- og réttindamálum eldri borgara. Um velferðarmál aldraðra.
Aðalfundur SES, Sambands eldri Sjálfstæðismanna, mótmælir harðlega þeim fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar að loka Líknardeild aldraðra á Landakoti . Deildin spratt upp úr þörf og nauðsyn á slíkri sérhæfðri líknardeild, sem er sú eina á landinu. Þar hefur mikil sérfræðiþekking byggst upp, sem hefur nýst í betri umönnun og hjúkrun aldraðra síðasta æviskeiðið. Þessi sérfræðiþekking hefur komið að gagni á öðrum dvalar- og hjúkrunarheimilum víðs vegar um landið og orðið þeim hvatning til að gera betur. Lokun Líknardeildarinnar á Landakoti er spor til fortíðar, lýsir skeytingaleysi fyrir líðan aldraðra og skammsýni duglausra stjórnmálamanna.
Aðalfundur SES mótmælir harðlega síendurteknum skerðingum á framlögum til sjúkrahúsa og hjúkrunar- og dvalarheimila aldraðra með þeim afleiðingum að biðlistar lengjast á sama tíma og velferðarráðherra lætur loka vistrýmum á hinum ýmsu hjúkrunar- og dvalarheimilum. Þessar aðgerðir bitna þungt á öldruðum og aðstandendum þeirra. Aðalfundur SES átelur of strangt vistunarmat fyrir umsækjendur um hjúkrunarrými. Það er réttlætt með því að nauðsynlegt sé að skera niður, en dulinn sparnaður af því tagi er ómannúðlegur og bitnar á heilsu og andlegri líðan hinna öldruðu.
Í stjórn SES voru kjörin á fundinum: Halldór Blöndal formaður, Margrét S. Einarsdóttir varaformaður, Finnbogi Björnsson, Guðmundur Hallvarðsson, Guðrún V. Haraldsdóttir, Lilja G. Hallgrímsdóttir, Sigríður Sveinsdóttir, Sigurbjörg Axelsdóttir og Sveinn Scheving.





































