Göngin lokuð í nótt og víða hált
Hvalfjarðargöng verða lokuð vegna viðhaldsvinnu aðfaranótt fimmtudags 3. nóvember og næstu 12 virkar nætur frá klukkan 24:00 til klukkan 06:00 að morgni. Um helgar verða göngin opin samkvæmt venju. Víða er hálka á vegum landsins.
Samkvæmt umferðarþjónustu Vegagerðarinnar er spáð hitaskilum með hvassri NA-átt sem fara norður og norðvestur yfir landið í nótt. Reikna má með hríðarveðri og takmörkuðu skyggi á hæstu fjallvegum frá því í kvöld, á Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði og Fjarðarheiði og undir miðnætti á Holtvörðuheiði, Öxnadalsheiði og ef til vill víðar.
Áfram er búist við mikilli veðurhæð, skafrenningi og síðar hríð á Steingrímsfjarðarheiði og á Þröskuldum. Á lægri fjallvegum er varsamur krapi líklegur til að byrja með í kvöld en síðan rigning og vatnselgur.
Þá er gert er ráð fyrir hviðuveðri, 30-35 m/s á Kjalarnesi, undir Hafnarfjalli og á veginum um Staðarsveit þar til seint í nótt þegar lægir.
Óveður er á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli og óveður er einnig á sunnanverðu Snæfellsnesi. Hálkublettir eru á Bröttubrekku, Holtavörðuheiði og Laxárdalsheiði. Hálka og óveður er í Svínadal.
Á Vestfjörðum er snjóþekja og óveður á Steingrímsfjarðarheiði, óveður geysar einnig á Klettshálsi þar sem það er þæfingsfærð. Ófært er um Þröskulda og í Árneshrepp. Vegfarendum sem eiga leið á Hólmavík er bent á að fara Ennisháls og strandir.
Hálkublettir eru í Ísafjarðardjúpi en hálka á Gemlufallsheiði. Dynjandisheiði er þungfær og Hrafnseyrarheiði ófær.
Á Norðvesturlandi eru hálkublettir á Vatnsskarði og hálka á Þverárfjalli, í Langadal og á Siglufjarðarvegi.
Á Norðausturlandi er hálka og éljagangur á Öxnadalsheiði og Víkurskarði. Hálka og éljagangur er á Mývatnsheiði og á Mývatnsöræfum. Þungfært er á Hólasandi. Éljagangur er víða.
Á Austurlandi er hálka á Möðrudalsöræfum, Sandvíkurheiði og Öxi. Hálkublettir eru á Vopnafjarðarheiði,Vatnsskarði eystra, Breiðdalsheiði og á Fagradal. Þæfingsfærð er á Hellisheiði eystri.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 1. nóvember 2011, Innlent Óveður og ófærð fyrir vestan
- Miðvikudagur, 6. apríl 2011, Innlent Hvalfjarðargöng lokuð í nótt
- Miðvikudagur, 2. nóvember 2011, Innlent Þröskuldar ekki mokaðir í dag
- Fimmtudagur, 7. apríl 2011, Innlent Hvalfjarðargöng lokuð í nótt
- Þriðjudagur, 12. apríl 2011, Innlent Hvalfjarðargöng lokuð í nótt
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































