Á björgunarsveitum líf sitt að launa
Ólafur Ragnar Grímsson tók þátt í sölu á Neyðarkalli Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í dag Frá Slysavarnarfélaginu
Fyrsta Neyðarkarlinn sem Slysavarnarfélagið Landsbjörg seldi í dag keypti Magnús Gunnlaugsson, sem á líf sitt björgunarsveitum að launa, eftir að bátur hans sökk norður af Akurey í mars á þessu ári. Félaga Magnúsar var einnig bjargað meðvitundarlausum og illa ofkældum úr sjónum og mátti ekki miklu muna að hann léti lífið.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hóf formlega sölu Neyðarkalls björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar í verslanamiðstöðinni Kringlunni síðdegis í dag.
Forsetinn aðstoðaði björgunarsveitafólk við söluna í góða stund og seldi gestum og gangandi í Kringlunni fjölmarga Neyðarkalla.
Neyðarkallinn verður seldur um land allt nú um helgina (3.-6. nóvember). Er þetta í sjötta sinn sem þessi fjáröflun fer fram og er hún orðin ein sú mikilvægasta fyrir björgunarsveitir landsins.
„Afar mikilvægt er að vel takist til með söluna í ár þar sem björgunarsveitir hafa ekki farið varhluta af þeim tekjusamdrætti sem orðið hefur víðast hvar í þjóðfélaginu undanfarin ár. Á sama tíma hafa verkefnin verið ærin. Þrjú eldgos sem eru með stærri aðgerðum björgunarsveita frá stofnun þeirra og mikil aukning í ferðamennsku eru meðal þeirra aðstæðna sem hafa valdið sífellt fleiri útköllum sjálfboðaliðanna í sveitunum," segir í tilkynningu frá Landsbjörgu.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 3. nóvember 2011, Innlent Sala á neyðarkallinum hefst í dag
- Sunnudagur, 27. mars 2011, Innlent Útskrifaður af gjörgæsludeild
- Þriðjudagur, 6. desember 2011, Innlent Sex milljónir til Færeyja
- Fimmtudagur, 26. janúar 2012, Innlent Um 250 hjálparbeiðnum sinnt
- Laugardagur, 26. mars 2011, Innlent „Mátti ekki á tæpara standa“
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































