Gæsluvarðhaldsúrskurðir staðfestir

Lögreglustöðin á Selfossi. stækka

Lögreglustöðin á Selfossi. mbl.is/GSH

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að tveir karlmenn sæti gæsluvarðhaldi til klukkan 16 á morgun. Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms í gær yfir félaga mannanna um að hann skyldi einnig sæta gæsluvarðhaldi þar til á morgun.

Fallist er á að fram sé kominn rökstuddur grunur að mennirnir kunni að hafa gerst sekir um fíkniefnabrot sem varðað geti fangelsisrefsingu.

Í greinargerð lögreglustjórans á Selfossi kemur fram að mennirnir hafi verið handteknir klukkan 00.40 aðfaranótt fimmtudagsins 27. október sl. í orlofshúsi grunaðir um fíkniefnamisferli. Við húsleit í orlofshúsinu hafi fundist 374,34 grömm af kókaíni, 369,06 grömm af hvítu duftkenndu efni af óþekktum toga, 219 stykki af hylkjum með óþekktu innihaldi, brúsar sem innihéldu aceton (naglalakkseyði), olíuhreinsi og startvökva.

Fyrir liggi  að mennirnir hafi haft afnot af bifreið sem staðið hafi á bifreiðaplani skammt frá orlofshúsinu en bifreiðin sé í eigu fjórða mannsins sem einnig hafi verið handtekinn aðfaranótt fimmtudagsins 27. október sl. Í fyrrnefndri bifreið hafi fundist leigusamningur um áðurnefnt orlofshús þar sem leigutaki er tilgreindur. Sá maður sé ófundinn þrátt fyrir víðtæka leit lögreglu en fram sé komið í málinu að nefndur maður hafi átt samskipti við staðarhaldara orlofshússins mánudaginn 24. október sl., þ.e. við upphaf leigutímans.

Samkvæmt málatilbúnaði lögreglustjóra beinist rannsókn lögreglu að ætlaðri hlutdeild   samverkamanna kærða að fíkniefnamisferli. Rannsaka þurfi styrkleika efna sem fundust í húsleit í orlofshúsinu, tengsl kærðu innbyrðis, taka þurfi frekari skýrslur af þeim og finna þurfi mann þann sem leigði orlofshúsið en ljóst sé að hann tengist ótvírætt málinu. 

Rannsóknargögn málsins, þ. á m. myndir af vettvangi, sýna ætlað kókaín víðsvegar um orlofshúsið, m.a. á matardiskum og skálum á borði í eldhúsi, í skaftpotti á gólfi í svefnherbergi og í glerkrukkum á gólfi í svefnherbergi. Auk þess hafi fundist óþekkt efni í plastdunk, merktum Creatine, í tösku í svefnherbergi og óþekkt efni á skál í eldhúsi. Þá hafi fundist gluggaskafa og skeiðar með hvítum efnisleifum á diski á stofuborði. Gat því engum sem í orlofshúsinu var dulist að um fíkniefni var að ræða.  

Lögregla hefur til rannsóknar nokkuð umfangsmikið brot á fíkniefnalöggjöfinni sem varðað getur fangelsisrefsingu ef sök sannast. Rannsókn málsins er á frumstigi og beinist meðal annars að þætti hvers og eins þeirra fjögurra manna sem handteknir voru í tengslum við rannsókn að málinu og þá leitar lögregla fimmta mannsins sem rannsóknargögn málsins benda til að tengist málinu.

Með vísan til þess sem fram kemur í greinargerð lögreglustjóra og þess sem rannsóknargögn bera með sér, er fallist á það með lögreglustjóra að mennirnir séu undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem geti varðað fangelsisrefsingu og að rannsóknarhagsmunir krefjist þess að hann sæti gæsluvarðhaldi ella megi ætla að þeir muni torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu sumarhúsalóðir í landi Möðruvalla 1 (Norðurnes) í Kjós. Nánari upplýsin...
HOBBY 540 UFE 2006 M. ISABELLA FORTJALDI TIL SÖLU
Mjög vel með farið - lítur vel út - reyklaust - sólarsella. Uppl. í s. 893 5179...
TOYOTA COROLLA H/B
Toyota Corolla H/B Sol, 01/2004, ekinn 84 þús. Ssk., vindskeið,...
HÚSGÖGN,HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA TIL SÖLU.
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, ísskápar, þvottavélar, Þurrkarar, Nuddp...
 
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...