Uppfyllir hinstu ósk bróður síns

Ingvi Hrafn Jónsson stækka

Ingvi Hrafn Jónsson Gúndi

Ingvi Hrafn Jónsson fjölmiðlamaður hyggst fara fram á rannsókn á þeirri læknismeðferð sem bróðir hans heitinn, Óli Tynes fréttamaður, fékk á krabbameinsdeild Landspítalans.

Óli lést nýlega af krabbameini og var jarðsunginn í dag.

„Ég lofaði honum því á dánarbeði að ég myndi óska eftir því við landlækni að fram færi rannsókn á læknismeðferðarferli hans á Landspítalanum þegar hann kom þangað aftur inn veikur. Hann var mjög ósáttur við hvernig fór og fékk að eigin mati enga læknismeðferð þegar hann greindist með krabbamein aftur,“ segir Ingvi Hrafn, en Óli hafði nýverið verið í krabbameinsmeðferð og var talinn hafa læknast af því.

„Ég mun hringja í landlækni strax í fyrramálið og spyrja hvernig ég eigi að koma þessari ósk á framfæri.“

„Óli ætlaði sjálfur að skrifa bréf til landlæknis, sem yrði birt að honum látnum. En hann missti þrek og gat aldrei klárað það. Ég  spurði hann hvort við ættum að klára þetta bréf saman, en hann sagði „Nei, ég á ekkert í það lengur. Þú verður að sjá um það fyrir mig.“

Ingvi Hrafn segist vera búinn að vera í samskiptum við Björn Zoëga, forstjóra Landspítalans, vegna þessa.

„Ég sagði honum að ég myndi, fyrir hönd Óla látins, óska eftir að ferlið síðustu tvo mánuðina hans á spítalanum verði kannað. Kannski verður niðurstaðan sú að þetta hafi verið allt í lagi. En þá hef ég allavegana uppfyllt síðustu ósk hans við mig. Það eina sem fyrir Óla vakti, þegar hann ætlaði að skrifa þetta opna bréf sem hann gat aldrei klárað var að ef einhverju hefði verið ábótavant, þá myndi þetta verða til þess að aðrir lentu ekki í því sama.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Guðrún Þóra Sigurðardóttir nýstúdent frá Kvennaskólanum.

Dúxinn fer í Hússtjórnarskólann

07:57 Nýstúdentinn Guðrún Þóra Sigurðardóttir er dúx frá Kvennaskólanum í Reykjavík en hún útskrifaðist á laugardaginn af náttúrufræðibraut skólans með 9,84 í lokaeinkunn. Er það hæsta einkunn á stúdentsprófi í sögu skólans. Meira »
Grjót á veginum um Dynjandisheiði.

Grjóthrun á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði

07:49 Talsvert grjóthrun varð um helgina, bæði á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði. Vegurinn á milli Þingeyrar og Flókalundar var á köflum mjög slæmur eftir miklar rigningar og grjóthrun um helgina og lentu einhverjir ökumenn í vandræðum vegna þess. Meira »

Semja þarf um þingfrestunina

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir á forsetastóli.
07:33 Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, kveðst þurfa að funda sem fyrst með þingflokksformönnum eftir eldhúsdagsumræður til að semja um þinglok. Hún segir að betra verði að meta framhaldið þegar atvinnuveganefnd hefur afgreitt sjávarútvegsfrumvörpin. Meira »

Repjuolía tilvalin á norðurslóðum

Repjuakur í blóma á Þorvaldseyri.
05:30 Brýnt er að aðrir orkugjafar en jarðdísilolía verði notaðir í skipasiglingum um norðurslóðir að sögn Jóns Bernódussonar, verkfræðings hjá Siglingastofnun, en brennsla hennar getur aukið á bráðnun íss á svæðinu. Meira »

Ótryggðir úti á túni

Vafi leikur á því í frumvarpinu hvort ökumenn sem lenda í umferðaróhappi á bílastæði væru ...
05:30 Alvarlegar athugasemdir eru gerðar við að slysatrygging ökumanns ökutækis verði takmörkuð frá því sem nú er og að hún gildi einungis í almennri umferð, þ.e. „á vegum sem opnir eru almenningi“. Tillaga þess efnis er í frumvarpi um ökutækjatryggingar sem liggur fyrir Alþingi. Meira »

Umferðaróhapp á Hafnarfjarðarvegi

06:08 Umferðaróhapp varð laust eftir miðnætti á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnesbrú. Ökumaður var fluttur á slysadeild en meiðsl hans eru ekki talin alvarleg. Grunur leikur á um ölvun við akstur. Meira »

Gríðarmikil óánægja með lokun útibúa

05:30 Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, kveðst hafa orðið var við gríðarmikla óánægju á meðal sveitarstjórnarmanna vegna ákvörðunar Landsbankans um fækkun starfsstöðva. Meira »

Loka þyrfti 15-20 hellum

Hellinum Jörundi hefur verið lokað fyrir allri umferð, bæði fyrir hellamönnum og öðrum, til að ...
05:30 Hellarannsóknafélag Íslands vill að 15-20 hellum á landinu verði lokað á næstu árum til að forða þeim frá skemmdum. Ef ekkert verði að gert skemmist hellarnir enn frekar. Um leið þurfi að huga að því að auðvelda aðgengi að þeim hellum sem hægt er að skoða án þess að valda skemmdum. Meira »

Slitastjórn kannaði störf Pars Per Pars

05:30 Slitastjórn Glitnis lét kanna sérstaklega hvort tveir fyrrverandi lögreglumenn hefðu „stytt sér leið“ í störfum sínum fyrir slitastjórnina. Meira »

Bjartviðri víðast hvar

04:35 Breytileg átt, víða 3-8 m/s, verður á landinu í dag og bjartviðri, en skýjað og sums staðar þokuloft fram eftir morgni, einkum vestantil. Hæg austlæg eða breytileg átt undir hádegi og yfirleitt léttskýjað. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. Meira »

7.000 vinnustundir að baki

Á deildinni í Kópavogi verða átta rúm opin í sumar.
05:30 Að baki nýbyggingu við líknardeild í Kópavogi liggja nærri sjö þúsund vinnustundir en ljóst er að byggingin verður ekki tekin í notkun fyrr en í fyrsta lagi í haust sökum frekari sparnaðaraðgerða á Landspítalanum, sem fram hafa komið hjá Birni Zoëga, forstjóra Landspítalans. Meira »

Fimm teknir fyrir of hraðan akstur við Borgarnes

Lögreglan við eftirlit.
Í gær, 23:30 Fimm voru teknir fyrir að aka of greitt í grennd við Borgarnes í dag. Að öðru leyti virðist þessi fyrsta ferðahelgi sumarsins hafa gengið vel í umferðinni víðast hvar um landið. Meira »

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

Kirkjugestir voru teknir til altaris.
Í gær, 21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
Í gær, 19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Sé ekki í samkeppni við þingið

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
Í gær, 18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem sé að vera sameiningarafl. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

Í gær, 21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Konan fannst látin

Í gær, 19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
Í gær, 18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sérsmíðuð garðhúsgögn
Til sölu sérsmíðuð garðhúsgögn úr gagnvarini furu upplýsingar í síma 8694479 og ...
Slökkvitæki á ótrúlegu verði
Vegna magninnkaupa bjóðum við nokkrar gerðir slökkvitækja á ótrúlegu verði í tak...
chuahua til sölu
ég er með tvo chuahua hunda til sölu tík og rakka þeir eru mjög ljúfir og góðir ...
Ertu með ristilkrabba á byrjunarstigi?
Eftir hægðir setur þú eitt Ez Detect prófblað í salernið. Ef ósýnilegt bl...
 
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...