Í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás á Reyðarfirði í febrúar sl. Þá er manninum gert að greiða 366.460 krónur í sakarkostnað.
Manninum var gefið að sök að hafa slegið annan mann hnefahögg í höfuðið, með þeim afleiðingum að hann hlaut djúpan 3,5 sm langan skurð á hægri augabrún og bólgu á hægri kinn. Ákærði neitaði hins vegar sök.
Fram kemur í dóminum að samkvæmt fyrirliggjandi sakavottorði eigi maðurinn sér óslitinn sakaferil á árabilinu 2001 til 2006. Á því tímabili hlaut hann sjö dóma fyrir brot á almennum hegningarlögum. Þar af var hann tvisvar dæmdur fyrir líkamsárásir sem báðar töldust varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga. Auk þess sem hann var í einu tilviki að auki dæmdur fyrir umferðarlagabrot.
Síðast hlaut maðurinn dóm 2. júní 2006 fyrir þjófnað og var hann þá dæmdur til fjögurra mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar. Var þá um að ræða hegningarauka við dóm sem ákærði hlaut 24. október 2005 fyrir þjófnað og tilraun til þjófnaðar.
Þeir dómar sem maðurinn hlaut fyrir líkamsárásir voru kveðnir upp 5. júní 2003 og 11. maí 2005, en einungis síðari dómurinn hefur ítrekunaráhrif í máli þessu.
Honum var veitt reynslulausn 15. maí 2009, skilorðsbundið í eitt ár, af eftirstöðvum refsingar óskilorðsbundinna fangelsisdóma sem hann hlaut á árunum 2005-2006. Stóðst hann þá reynslulausn.
Þá segir að við ákvörðun refsingar mannsins sé tekið mið af því að nokkur áverki hafi hlotist af árásinni. Af hálfu ákærða er því borið við að hinn maðurinn hafi átt upptök að árásinni með því að kyssa eða reyna að kyssa unnustu hans. Um það standi orð brotaþola gegn orðum hennar, en ljóst sé af framburðum vitna að ásakanir um þetta hafi komið upp. Þótti því rétt að taka mið af því við ákvörðun refsingar mannsins að brot hans hefði verið framið í geðshræringu.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 26. janúar 2012, Innlent Skilorðsbundið fangelsi fyrir 2 líkamsárásir
- Miðvikudagur, 9. mars 2011, Innlent Í fangelsi fyrir líkamsárásir
- Föstudagur, 29. apríl 2011, Innlent Í fangelsi fyrir líkamsárás
- Fimmtudagur, 15. mars 2012, Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás
- Þriðjudagur, 22. nóvember 2011, Innlent Dæmdur fyrir harkalega árás
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































