Ólögleg beygja gerð auðveldari
Þegar ekið er út af endurvinnslustöðinni má aðeins taka beygju til hægri, niður Dalveginn, en bannað að taka beygju upp götuna. Flutningabílnum var ekið í veg fyrir hjólreiðamanninn sem lenti undir bílnum og stórslasaðist. mbl.is/Rannsóknarnefnd umferðarslysa
Kantsteini við útkeyrslu út af endurvinnslustöð Sorpu á Dalvegi var breytt í fyrra, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Kópavogsbæ í gær. Afleiðingin af breytingunni er sú að ökumönnum var gert auðveldara að taka ólöglega beygju inn á stöðina, gegn einstefnu.
Eins og flestum er kunnugt varð alvarlegt slys við stöðina á Dalvegi 19. október þegar gámaflutningabíll tók ólöglega beygju, gegn einstefnu, og ók yfir hjólreiðamann sem var á leið niður stíginn, í sömu átt og bíllinn. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu var það haft sem vinnuregla að aka gámaflutningabílum inn á móti einstefnunni.
Lögregla rannsakar nú slysið m.a. með tilliti til hugsanlegrar refsiábyrgðar stjórnenda. Í kjölfar slyssins vakti strax athygli að umferðarmannvirki virtust beinlínis hönnuð til að auðvelt væri að beygja inn á gámasvæðið, þrátt fyrir að það sé ólöglegt og að gatan sé í skipulagi Kópavogs flokkuð sem einstefnugata. Í deiliskipulagsuppdrætti af stöðinni sést greinilega að teikning af kantsteininum er mjög frábrugðin því hvernig hann er í raun og veru. Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að samkvæmt uppdrættinum hefði sá sem vildi aka á móti einstefnu þurft að taka krappa beygju en eins og sést á myndinni hér fyrir ofan er kantsteinninn hafður þannig að auðvelt er að taka ólöglega beygju inn á svæðið.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 21. október 2011, Innlent Hjólreiðamaður enn í öndunarvél
- Laugardagur, 24. mars 2012, Innlent Lít upp og þá er bíllinn að beygja fyrir mig
- Þriðjudagur, 25. október 2011, Innlent Líðan hjólreiðamannsins óbreytt
- Þriðjudagur, 1. nóvember 2011, Innlent Harma slys á Dalvegi
- Föstudagur, 21. október 2011, Innlent Ljóst að gámaflutningabíl var ekið gegn akstursstefnu
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































