Jeppi valt í Vatnsskarði

Jeppabifreið valt í Vatnsskarði rétt eftir klukkan hálfníu í kvöld. Tvennt var í bílnum og voru þau bæði flutt á Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi eru þau ekki slösuð.

Að sögn lögreglu er mikil ísing og hálka á þessum slóðum og er það talið vera orsök slyssins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert