Jóhanna fundar í Brussel

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. mbl.is/Ómar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fer eftir helgina til funda í Brussel. Þar mun hún eiga fundi með Herman van Rompuy, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins og Jose Manuel Barrosso, forseta framkvæmdastjórnar ESB.

Jafnframt fundar forsætisráðherra með Yves Leterme, forsætisráðherra Belgíu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert