Svört laun langvarandi vandi

Svört atvinnustarfsemi er umfangsmeiri en talið var. stækka

Svört atvinnustarfsemi er umfangsmeiri en talið var.

„Dulin atvinnustarfsemi sem felst í svörtum launum hefur verið vandamál mjög lengi, við höfum margsinnis rekist á það. En það sem kom mér mest á óvart var að þetta væru svona mörg fyrirtæki sem eitthvað var athugavert við,“ segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

Umræður um svart hagkerfi urðu á Alþingi í gær í ljósi þeirrar staðreyndar, sem ný könnun leiddi í ljós, að 12% starfsmanna lítilla og meðalstórra fyrirtækja séu í svartri vinnu. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra neitaði því að umfang vandans væri til komið vegna skattastefnu ríkisstjórnarinnar. Um viðvarandi vandamál væri að ræða sem ekki tengdist sköttum.

Um þetta mál er í sjálfu sér nokkuð erfitt að fullyrða vegna þess að jafnítarlegar úttektir á svartri atvinnustarfsemi í landinu hafa ekki áður verið gerðar og raunhæfur samanburður því ekki fyrir hendi.

Fyrsta opinbera rannsóknin á dulinni atvinnustarfsemi var gerð 1984- 1986. Síðan hafa verið gerðar tvær úttektir, 1993 og 2004. Í þeirri fyrrnefndu var getum að því leitt að árið 1992 hefði umfang skattsvika í heild numið rúmum 4% af landsframleiðslu, á annan tug milljarða kr.

Í skýrslu starfshóps um umfang skattsvika árið 2004 var áætlað að 8,5-11,5% af landsframleiðslu væru dregin undan skatti, eða sem næmi 18-24 milljörðum króna á verðlagi þess árs. Að auki var árið 2000 gerð skýrsla sem fjallaði eingöngu um virðisaukaskatt og var þá líkum leitt að því að umfang undanskota væri á bilinu 6-8% sem jafngilti þá 4-5 milljarða tekjutapi ríkissjóðs.

Nálganirnar í þessum skýrslum eru mjög ólíkar og í engri þeirra voru dulin laun skoðuð sérstaklega.

Að auki byggist matið á skattaundanskotum á varlegum ágiskunum og verður því að taka með fyrirvara. Úttektin í ár er sú fyrsta sem gerð er þar sem sjónum er sérstaklega beint að svartri atvinnu, með áherslu á lítil og meðalstór fyrirtæki.

„Það er ekki hægt að slá því föstu að [svört atvinnustarfsemi] hafi aukist eða minnkað. Það getur vel verið að þetta hafi verið til staðar í þessu umfangi í mörg ár þótt menn bara viti það ekki. En það sem er hægt að slá föstu er að þetta er meira en talið var,“ segir Skúli Eggert.

Ákveðið hefur verið að endurtaka könnunina eftir nokkur ár til að fylgjast með þróuninni. Þannig verður í fyrsta skipti hægt að draga marktækar ályktanir um orsakir hugsanlegrar aukningar svartrar atvinnu. Hvað varðar samband skattalaga og svarts hagkerfis sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, þegar úttektin var kynnt, að þótt margt mætti betur fara í skattaumhverfinu réttlætti það ekki að menn hefðu sína eigin hentisemi. „Menn verða að fara eftir leikreglum samfélagsins en ekki taka lögin í eigin hendur.“

Tap vegna skattsvika

13,8

milljarðar tapast á ári vegna

svartrar vinnu

samkvæmt

nýrri úttekt ríkisskattstjóra,

ASÍ og SA.

Á annan tug

milljarða eða 4% af landsframleiðslu tapaðist

vegna skattsvika árið 1992

samkvæmt varlegri áætlun.

18-24

milljarðar króna, á bilinu

8,5-11,5% af landsframleiðslu,

voru dregnir undan skatti

árið 2004 samkvæmt áætlun.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BÍLAMERKINGAR
Bílamerkingar Fyrir allar stærðir og gerðir bíla. Sendið fyrirspurn á audmerkt@a...
Er tölvan hæg eða biluð, ódýrari tölvuaðstoð
Þjónusta fyrir þig þegar þér hentar! Tek að mér að uppfæra, rykhreinsa og laga ...
Ösp er nýtt úr með Mp4 spilara og fleiru
Öspin er 8GB armbandsúr, Mp3, Mp4, útvarp, myndasafn og fl. Verð 18.750,- Góð dæ...
Starcraft Fellihýsi með fortjaldi
Til sölu Starccraft Fellihýsi 9 ft árg 2000 ásamt nýlegu forjaldi ásett verð 69...
 
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Tækniskólinn - atvinnuauglýsing
Önnur störf
Framúrskarandi kennarar óskast í ...