Andlát: Ólafur Oddsson

Ólafur Oddsson. stækka

Ólafur Oddsson.

Ólafur Oddsson, menntaskólakennari, lést á hjartadeild Landspítalans hinn 3. nóvember sl., 68 ára að aldri. Hann var fæddur í Reykjavík 13. maí 1943.

Foreldrar Ólafs voru Oddur Ólafsson, barnalæknir, f. 11. maí 1914, d. 4. janúar 1977 og Guðrún P. Helgadóttir, dr. phil., fyrrverandi skólastjóri Kvennaskólans í Reykjavík, f. 19. apríl 1922, d. 5. júlí 2006. Foreldrar Odds læknis voru Ólafur Oddsson, ljósmyndari, og Valgerður H. Briem, húsmóðir. Foreldrar Guðrúnar voru Helgi Ingvarsson, yfirlæknir á Vífilsstöðum, og Guðrún Lárusdóttir, húsmóðir.

Ólafur var kvæntur Dóru Ingvadóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Ríkisútvarpsins, f. 26. september 1945. Dætur þeirra eru Guðrún Pálína og Helga Guðrún og fósturdóttir Ólafs er Anna Kristín. Barnabörn Ólafs og Dóru eru sex.

Ólafur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1963 og cand. mag. prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands 1970. Hann var íslenskukennari við Menntaskólann í Reykjavík allan sinn starfsferil eða frá árinu 1970 til ársins 2008. Eftir að hann hætti kennslu sinnti hann ýmsum störfum í þágu skólans til dauðadags.

Ólafi var umhugað um íslenska tungu og bókmenntaarfinn. Hann hafði umsjón með þættinum Daglegt mál í Ríkisútvarpinu um árabil og eftir hann liggja ýmis rit um íslenskt mál. Þá skrifaði hann fjölmargar blaðagreinar um margvísleg málefni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Senda

Innlent »

Óðu snjóinn á leiðinni á völlinn

Leikmenn KF og KA óðu snjóinn í dag.
17:41 Það var ekki beinlínis sumarlegt þegar leikmenn knattspyrnuliðanna KA og KF skokkuðu út á völlinn fyrir leik sinn í fyrstu deildinni í dag. Þó að langt sé liðið á maímánuð og sumarið hafi litið dagsins ljós á dagatölunum, má enn víða sjá hvíta jörð á Ólafsfirði þar sem leikurinn fór fram. Meira »

„Fögnum og endurnýjum kynnin“ myndskeið

landsbjorg
17:29 „Þetta var frábært þing og gríðarlega góð mæting alls staðar að af landinu. Það voru yfir 600 manns sem voru skráðir á þingið og þar fór fram mjög málefnaleg og góð umræða um helstu áherslur og málefni félagsins.“ Meira »

Ræktun stöðvuð í heimahúsi

Úr myndasafni.
17:13 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag kannabisræktun í heimahúsi við Heiðarás í Reykjavík í kjölfar húsleitar en þar voru um eitt hundrað kannabisplötur í ræktun. Meira »

Skólameistari lætur af störfum

Einar Birgir Steinþórsson, fráfarandi skólameistari Flensborgarskóla ásamt Magnúsi Þorkelssyni, aðstoðarskólameistara skólans.
15:48 Einar Birgir Steinþórsson, skólameistari Flensborgarskóla, hefur ákveðið að láta af störfum og starfar því ekki út skipunartíma sinn. Hann segir að mjög sé þrengt af framhaldsskólunum og því fylgi álag að reyna að halda sjó. Meira »

Margir vilja láta mæla gildi sín

Fjölmargir hafa lagt leið sína í SÍBS-húsið til að láta mæla hjá sér blóðþrýsting og ...
14:20 Segja má að fullt sé út úr dyrum í SÍBS-húsinu í Síðumúla þar sem Hjartaheill býður í dag ókeypis mælingar á blóðþrýstingi og öðrum gildum. Sökum þess er nokkur bið eftir mælingum en létt er yfir fólki, að sögn fréttaritara mbl.is á staðnum. Áfram verður boðið upp á mælingar á morgun. Meira »

Þrjú vilja þjóna á Patreksfirði

Patreksfjarðarkirkja
13:32 Þrjú sóttu um embætti prests í 50% starfshlutfalli í Patreksfjarðarprestakalli, Vestfjarðarprófastsdæmi. Frestur til að sækja um rann út 7. maí síðastliðinn og veitist embættið frá 1. júní næstkomandi. Meira »

Vélhjólaslys austur af Klaustri

15:17 Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Landspítalanum í Fossvogi um þrjúleytið með einstakling sem slasaðist í mótorhjólaslysi austan við Kirkjubæjarklaustur samkvæmt upplýsingum frá Gæslunni. Meira »

Breytt viðhorf til alvarlegra vanskila?

14:03 Forstöðumaður fyrirtækjasviðs Creditinfo segir umhugsunarefni að alvarleg vanskil séu að aukast á sama tíma og atvinnuleysi minnkar og kaupmáttur eykst. Hann veltir því fyrir sér hvort greiðsluvilja skuldara skorti eða greiðslugetu. Meira »

Undirbúa minningarmót um Motzfeldt

Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt, ekkja Jonathans, sem er gestgjafi Hróksliða í Nuuk, og Aleqa Hammond, forsætisráðherra ...
12:58 Liðsmenn Skákfélagins Hróksins hafa undanfarna daga dvalið í Nuuk, höfuðborg Grænlands, til að undirbúa minningarskákmót um Jonathan Motzfeldt, fyrsta forsætisráðherra Grænlands. Meðal annars var fundað í vikunni með forsætisráðherra Grænlands, Alequ Hammond, þar sem hún hét stuðningi sínum. Meira »

Eiginmaður Eyglóar spilar á saxófón

Sigurður E. Vilhelmsson líffræðingur, framhaldsskólakennari, þýðandi og eiginmaður nýorðins félags- og húsnæðismálaráðherra, Eyglóar Harðardóttir.
10:30 Makar þeirra ráðherra sem tóku sæti í nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks deila því hvernig næstu ár horfa við þeim hvað fjölskyldulíf varðar, hvaðan þeir koma og hvað þeir gera sér til dundurs meðan makinn er í vinnunni við að stýra landinu. Meira »

Tæplega 2.500 jarðskjálftar í apríl

Upptök jarðskjálfta á Íslandi í apríl 2013. Rauðir hringir tákna jarðskjálfta stærri en 0 að ...
10:17 Veðurstofa Íslands hefur staðsett tæplega 2.500 jarðskjálfta í apríl. Helsti atburður mánaðarins var snörp skjálftaröð vestan við Grímsey, sem hófst með jarðskjálfta af stærð 5,5 þann 2. apríl. Skjálftinn fannst víða á Norðurlandi. Nokkur þúsund eftirskjálftar mældust, og er úrvinnslu ekki lokið. Meira »

„Þú ert viðbjóður og ógeð“

„Hann stóð í svefnherbergishurðinni og hleypti mér ekki út. Þegar maður er kominn í þessa ...
10:00 „Þó að ég byggi að reynslu úr mínu starfi við að aðstoða þolendur heimilisofbeldis þá datt ég sjálf í þennan pytt,“ segir kona sem hefur í gegnum árin unnið í velferðarkerfinu og m.a. oft rætt við þolendur heimilisofbeldis. Samt giftist hún manni sem beitti hana alvarlegu ofbeldi. Meira »

Færri nota frímerkin

Fallegasta frímerki ársins 2009.
09:39 „Við vonum að þau lifi á meðan sendibréfið lifir,“ segir Vilhjálmur Sigurðsson, forstöðumaður Frímerkjasölu Póstsins, um frímerkjanotkun landsmanna. Í gegnum árin hefur dregið úr notkun frímerkja og helst það á vissan hátt í hendur við fækkun bréfasendinga. Meira »

Stefna á breyttan ramma í sumar

Virkjanir í neðri hluta Þjórsár.
08:51 Sigurður Ingi Jóhannsson, nýr umhverfisráðherra, býst við að tillaga til nýrrar þingsályktunar um rammaáætlun verði lögð fyrir á sumarþingi. „Það verður væntanlega þannig að málinu verði vísað aftur til verkefnastjórnar [um rammaáætlun]“, sagði hann. Meira »

Vegurinn um Kjálkafjörð opnaður

Frá Kjálkafirði.
08:26 Vegagerðin hefur opnað Vestfjarðarveg nr. 60 um Kjálkafjörð en honum var lokað vegna hættu á skriðuföllum. Ekki þótti verjandi að ógna öryggi vegfarenda. Sérstök vakt var við framhlaupið í gær og veginum lokað á miðnætti. Hann hefur nú verið opnaður að nýju. Meira »

Barroso hlakkar til samstarfs

José Manuel Barroso.
09:36 „Ég hlakka til að eiga í góðu samstarfi við þig og ríkisstjórn þína og óska ykkur alls hins besta á kjörtímabilinu,“ segir í bréfi José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra. Meira »

Ekki bannað að biðja um fjárhagsupplýsingar

08:30 Engin sérstök lagaákvæði kveða á um bann við því að fjármálafyrirtæki óski eftir upplýsingum um fjárhagsstöðu maka skuldara.  Meira »

Líkfundur á Seltjarnarnesi

07:43 Lögregla og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins voru kölluð að fjörunni á Seltjarnarnesi í gærkvöldi vegna líkfundar. Fannst líkið í grennd við Nesvöll Golfklúbbs Seltjarnarness. Litlar sem engar upplýsingar fást um málið hjá lögreglu en ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Meira »
Reiðhjól
Til sölu reiðhjól. Verð 3000, s. 6633899 ...
PERKINS , YANMAR,VOLVO PENTA,DEUTZ , CUMMINS OG FL TEG.
Útvegum allar stærðir af rafstöðvum, varaafl sem aðalafl, rafala og fl. Margra ...
Fylgdarvinir
Óskað er eftir fylgdarkonum/fylgdarmönnum til að vera með fjárhagslega sjálfstæð...
Bónus bókhald
Tek að mér bókhald og skattframtöl fyrir minni rekstraraðila og stærri fyrirtæki...
 
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimili Grensásk...
Aðstoðarsaksóknari
Sérfræðistörf
Aðstoðarsaksóknari við embætti ríkissa...
Tónleikastjóri - tónlistarstjóri
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Samkoma
Félagsstarf
Kl. 11.00 Samkoma. Ræ...