Stýrið féll af á leið út ósinn

Alma kemur til Hornafjarðar. stækka

Alma kemur til Hornafjarðar. mbl.is/Sverrir Aðalsteinsson/Marine Traffic

Landhelgisgæslunni barst klukkan rúmlega þrjú í nótt aðstoðarbeiðni frá Birni Lóðs, dráttarbátnum á Höfn í Hornafirði vegna flutningaskipsins Alma, en stýri þess virkaði ekki þegar verið var að aðstoða skipið út fyrir ós í Hornafirði. 

Lóðsinn náði að taka skipið í tog og óskaði samstundis eftir allri aðstoð vegna aðgerðarinnar. Skrúfa og vél skipsins voru í lagi en skrúfublaðið reyndist dottið af.

Um kl. 06:00 var komin dráttartaug komin milli Ölmu og Hoffells og var þá hættuástandi aflýst. Björgunarskipi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Vetti, lóðsinum á Reyðarfirði var því snúið til hafnar.  Þyrla Landhelgisgæslunnar verður á Höfn í Hornafirði og til aðstoðar ef á þarf að halda.

Flutningaskipið verður dregið Austur fyrir Stokksnes vegna SV áttar á svæðinu og síðan í var á Berufirði eða Reyðarfirði. Á svæðinu er nú SA 10-15 m/sek en á að snúast í SV hvassviðri,  15-20 m/sek.

 Landhelgisgæslan hafði samband við Ingibjörgu, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Hornafirði og togskipið Hoffell sem staðsett var um 6 sjómílur suðaustur af Höfn. Einnig var haft samband við höfnina á Reyðarfirði til að fá dráttarbátinn Vött á staðinn og var Lóðsinn, dráttarbáturinn í Vestmannaeyjum, settur í viðbragðsstöðu. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang og varðskipið Þór var sett í viðbragðsstöðu.

Alma er um 100 m langt skip og  skráð á Kýpur, en það hefur að undanförnu haft viðkomu í  Vestmannaeyjum og á Hornafirði.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Vel fór á með þeim Ólafi Ragnari og John Micklethwait, ritstjóra Economist, á ráðstefnunni í ...

Forsetinn ræðir við ritstjóra Economist

21:51 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sat í dag fyrir svörum hjá John Micklethwait, ritstjóra The Economist, eins áhrifamesta fréttatímarits heims, á ráðstefnu um höfin sem tímaritið efndi til í Singapúr. Meira »
Óveður í Oddsskarði

Farþegarnir fluttir á Eskifjörð

21:11 Búið er að aðstoða og flytja burt alla farþega rútunnar sem valt í Oddsskarði um áttaleytið í kvöld. Í rútunni voru átta starfsmenn álversins á Reyðarfirði á leið heim til sín. Þeir voru fluttir á heilsugæsluna á Eskifirði til aðhlynningar en enginn var alvarlega slasaður. Meira »

Átta manns í rútu sem valt

Oddsskarð.
20:40 Átta manns voru um borð í lítilli rútu sem fór út af veginum í Oddsskarði rétt fyrir klukkan 20 í kvöld. Veginum er nú lokað. Ekki er vitað til að neinn hafi slasast alvarlega, en björgunarsveitir eru að flytja fólkið úr skarðinu. Meira »

Lést í bílslysi í Tansaníu

Gunnar Örn Gunnarsson
20:29 Íslenski pilturinn sem lést í bílslysi í Tansaníu síðastliðinn laugardag hét Gunnar Örn Gunnarsson. Hann bjó í Helsingborg í Svíþjóð ásamt fjölskyldu sinni. Meira »

Perlan fái hlutverk við hæfi myndskeið

Perlan1
20:15 Hugmyndir um að Perlan hýsi Náttúruminjasafn Íslands, sem lög gera ráð fyrir að rísi, hafa hlotið mikinn byr að undanförnu. Árni Hjartarson, formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags, segir að samskipti við stjórnarformann OR hafi verið afar jákvæð og að margir hafi tekið undir hugmyndina. Meira »

Flutningabíll valt á Fjarðarheiði

Á Fjarðarheiði.
20:37 Stór flutningabíll með eftirvagn, sk. trailer, valt á Fjarðarheiði ofan Seyðisfjarðar í vonskuveðri um sjöleytið í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum voru tveir menn í bílnum og sat annar þeirra fastur. Meira »

Oddsskarð lokað vegna slyss

20:22 Vegurinn um Oddsskarð er lokaður vegna umferðaróhapps, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.  Meira »

Styttist í hrognafrystingu

Loðnuhrognavinnsla hjá HB Granda Akranesi
20:02 Góður kraftur hefur verið í loðnuveiðum síðustu tvær vikur og nú styttist í að hrognafyllingin í loðnunni og þroski hrognanna gefi tilefni til að hægt verði að hefja hrognatöku og -frystingu. Meira »

Skafrenningur á Austurlandi

19:03 Hríð á flestum fjallvegum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Gera má ráð fyrir þéttri ofankomu og skafrenningi austanlands fram á nótt s.s. á Oddsskarði og Fjarðarheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Meira »

Leitar hjálpar vegna Aratúns-dóms

Aratúnið Málið spratt upp eftir skrif um Aratúnsfjölskylduna á bloggsíðu.
18:33 „Þetta er klárlega prófmál og mun hafa áhrif á önnur mál í framtíðinni þar sem einhver er ósáttur við ummæli á netinu," segir Andrés Helgi Valgarðsson, sem tapaði í vetur meiðyrðamáli vegna sk. Aratúnsmáls. Andrés hyggst áfrýja til Hæstaréttar en ræður illa við málskostnaðinn og leitar eftir aðstoð. Meira »

Fundaði með fulltrúum sveitarfélaga

Jóhanna Sigurðardóttir
19:01 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með fulltrúum forsvarsmanna landhlutasamtaka sveitarfélaga. Ræddi hún á fundinum um hvaða kostir eru í stöðunni varðandi verkefni á landsbyggðinni. Meira »

Vilja lækka olíugjald

18:32 Þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja í dag fram frumvarp til laga þar sem lagt er til að olíugjald verði lækkað umtalsvert.  Meira »

Unglingspilts enn leitað

Guðmundur Árnason.
18:19 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar lýsingu eftir Guðmundi Árnasyni, sem hvarf er hann var á ferð í Kópavogi hinn 17. febrúar sl. Meira »

Fær frest til þriðjudags

Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
17:44 Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur samþykkt að veita Gunnari Andersen, forstjóra FME, lengri frest til þess að andmæla fyrirhugaðri uppsögn. Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, segir að Gunnar fái frest til klukkan 16 næstkomandi þriðjudags. Meira »

Verslunarstjóri dæmdur fyrir umboðssvik

BYKO.
16:37 Hæstiréttur dæmdi í dag fyrrverandi verslunarstjóra BYKO á Selfossi í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir umboðssvik. Maðurinn var talinn hafa komið því til leiðar að fyrirtækið 5x fékk afhentar vörur frá versluninni árið 2007 án þess að staðgreiða þær. Meira »

Ósáttur við að vera þjófkenndur

Frá Landmannalaugum - mynd úr safni
18:17 Guðmundur Gústafsson, einn þeirra sem voru í hópi jeppamanna í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum um helgina, er afar ósáttur við að hópurinn sé þjófkenndur en gps-staðsetningartæki var stolið í skálunum um helgina. Meira »

„Enginn greiði gerður með þessu klúðri“

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
16:37 „Það er öllum að verða augljóst að málsmeðferð þessa máls er klúður,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag um afgreiðslu Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Leiga í félagslegu húsnæði hækkaði um 28%

16:32 Verð á húsaleigu fyrir félagslegar íbúðir hækkaði um 28,6% á tímabilinu 2007 til 2011. 14.055 fengu húsaleigubætur á síðasta ári og 3.756 fengu sérstakar húsaleigubætur. Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar alþingismanns. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005 , ekið 4.700 km. , er á nýjum Bigho...
Leðursófasett til sölu.
Vel með farið 3x1x1 leðursófasett til sölu. Verð 200,000,-kr, staðgreitt. Uppl...
Glæsilegir nuddbekkir frá USA
EarthLite meðferðabekkir frá USA. 561 9400 www.Rikki.is...
VW Polo Comfortline 1,4L 2000árg.
Ekinn122þ km Verð:440þ Ný tímareim,nýjir ventlar,nýyfirfarinn gírkassi,nýyfirf...
 
Fullbúið skrifstofu-, æfinga- og sýningarhúsnæði óskast

15190 - Fullbúið skrifstofu-, æfinga- o...
Sýslumaðurinn í vestmannaeyjum - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Opinn fundur
Fundir - mannfagnaðir
Opinn fundur um umferðar- og skip...
Executive director
Stjórnunarstörf
...