Hanna Birna í herferð

Hanna Birna Kristjánsdóttir
Hanna Birna Kristjánsdóttir Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og frambjóðandi til formanns flokksins, hóf í gær fundarherferð sína í kringum landið þegar hún fundaði með flokksmönnum á Ísafirði.

Þetta kemur  fram á vef Viðskiptablaðsins. Þar segir að  fundurinn hafi verið vel sóttur og að þaf hafi Hanna Birna kynnt áherslumál sín ásamt því að fara yfir hin ýmsu málefni sem brunnu á fundarmönnum.

Fundurinn var skipulagður af Halldóri Halldórssyni, formanni Sambands íslenskra sveitafélaga og fyrrv. bæjarstjóra á Ísafirði, en samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins styður hann Hönnu Birnu í komandi formannskosningum.

Frétt Viðskiptablaðsins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert